- Exista og Chris Ronnie kaupa 29% hlut í JJB Sports plc.


Eftirfarandi tilkynning birtist í kauphöllinni í London, London Stock Exchange:

Sameiginlegt félag í eigu Exista hf. og Chris Ronnie hefur keypt 29% hlut í JJB
Sports plc. („JJB“), breskri verslunarkeðju með ýmiskonar íþróttavarning og
tengdar vörur, fyrir 275 penní á hlut eða sem nemur samtals 190 milljónum
sterlingspunda (24 milljörðum króna). Eigið fé sameiginlegs félags er að jöfnu
í eigu Exista og Chris Ronnie. 

Seljandi þessa 29% hlutar er Whelan fjölskyldan, sem byggt hefur félagið upp á
undanförnum áratugum. 

Chris Ronnie mun taka við stöðu aðstoðarforstjóra JJB Sports. Chris hefur
starfað um 25 ára skeið í alþjóðlegum íþrótta- og sportvörugeira, meðal annars
hjá Sports Division, JJB Sports Plc., Umbro International Limited og
SportsWorld International Limited. 

Chris Ronnie: „Mér er það mikil ánægja að taka sæti í stjórn JJB, fyrirtæki sem
ég tel að eigi afar bjarta framtíð. David Whelan og fjölskylda á heiður skylinn
fyrir árangur fyrirtækisins og að koma því í þá leiðandi stöðu sem það er nú.
Auk þess hlakka ég til að starfa með Exista, sem og Kaupthing Singer &
Friedlander sem kom viðskiptunum á og annast fjármögnun.“ 

Lýður Guðmundsson, stjórnarformaður Exista: „Fjárfesting í JJB samræmist
fjárfestingastefnu okkar og uppfyllir þau skilyrði sem við setjum um gott
fjárstreymi og traust viðskiptalíkan, þar sem unnt er að leysa úr læðingi enn
frekari verðmæti í samvinnu við öfluga stjórnendur.“ 

Frekari upplýsingar veita:

Chris Ronnie
Sími:+44 (0)7786 910240


Sigurður Nordal
framkvæmdastjóri samskiptasviðs Exista
Sími:+354 550 8620 

 

Um JJB Sports plc.
JJB Sports, sem er leiðandi verslunarkeðja með íþróttavörur á Bretlandseyjum,
var stofnuð árið 1971 við kaup á íþróttavöruverslun í Wigan. Upphaflega
verslunin var stofnuð af JJ Broughton snemma á 19. öld, en þegar David Whelan,
stofnandi félagsins í núverandi mynd, keypti verslunina hélt hann nafninu JJB.
Árið 1994 var félagið skráð í kauphöllina í London og hafði þá stækkað úr 4
verlsunum árið 1976 í 120 verslanir árið 1994. 

Árið 1998 keypti JJB Sports stærsta keppinaut sinn, Sports Division, sem varð
til þess að félagið varð stærsta verslunarkeðja með íþróttavörur í Bretlandi. 

Frá þeim tíma hefur Sports Divsion verið að fullu sameinuð JJB og í dag rekur
félagið 410 verslanir í öllum helstu bæjum og borgum Bretlands, ásamt verslunum
á Írlandi. 

Markmið JJB er að bjóða upp á úrval vandaðra merkjavara fyrir íþróttir og
útivist. 

Jafnframt starfrækir JJB ört vaxandi heilsuræktardeild með líkamsræktarstöðvum
og knattspyrnuhöllum í tengslum við verslanir félagsins. 

Frekari upplýsingar er að finna á vefsíðu félagsins, www.jjbcorporate.co.uk.

Auðkenni í London Stock Exchange: JJB.L


Um Exista
Exista hf. starfar á sviði fjármálaþjónustu, einkum vátrygginga og eignaleigu,
meðal annars undir merkjum VÍS, Lífís og Lýsingar. Exista er jafnframt
alþjóðlegur fjárfestir og meðal annars kjölfestueigandi í Sampo Group,
Kaupþingi banka, Bakkavör Group og Símanum. Markmið Exista er að nýta
fjárhagslegan styrk sinn til uppbyggingar á starfsemi sinni hér á landi og
erlendis. 

Upplýsingar um Exista hf. er að finna á vefsíðu félagsins www.exista.is.
GlobeNewswire