- FL Group undirritar samning um 330 milljóna evra fjármögnun


FL Group hefur í dag undirritað 330 milljóna evra lánssamning til þriggja ára
við Morgan Stanley (um 28 milljarðar króna). Um er að ræða fjármögnun á
hlutabréfaeign FL Group í Glitni banka. 

Þessi fjármögnun undirstrikar traust FL Group á Glitni banka en nú hefur FL
Group fjármagnað með langtímalánum alla hlutafjáreign sína í bankanum, sem er
stærsta eign félagsins. Lántakan er um leið glöggt vitni um það ótvíræða traust
sem FL Group hefur áunnið sér á alþjóðlegum fjármálamörkuðum. 


Hannes Smárason, forstjóri FL Group: “Þessi fjármögnun, eykur sveigjanleika FL
Group til fjárfestinga til muna og styrkir lausafjárstöðu félagsins enn frekar.
 Um leið sýnir þetta styrk félagsins til að sækja fjármagn á ólíkum mörkuðum.
FL Group átti mjög gott samstarf við Morgan Stanley og lýsir yfir ánægu með
árangur þeirrar vinnu. Fjármögnunin undirstrikar jafnframt traust FL Group á
Glitni banka til framtíðar og staðfestir áform félagsins um að vera þar áfram
kjölfestufjárfestir.“ 


Frekari upplýsingar veita:
	
Sveinbjörn Indriðason
Fjármálastjóri FL Group
Sími: 591 4400	

Kristján Kristjánsson 
Forstöðumaður upplýsingasviðs
Sími: 591 4427



Um FL Group

FL Group er alþjóðlegt fjárfestingarfélag sem sérhæfir sig annars vegar í
áhrifafjárfestingum og umbreytingarverkefnum þar sem áhersla er lögð á langtíma
fjárfestingar í skráðum og óskráðum félögum og hins vegar í markaðsviðskiptum
sem lúta að skammtíma fjárfestingum sem og framkvæmd afleiðu- og
verðbréfaviðskipta tengdum eignasafni félagsins. 

Höfuðstöðvar FL Group eru í Reykjavík en félagið er einnig með skrifstofur í
Kaupmannahöfn og London. Það fjárfestir einkum í Norður-Evrópu, aðallega á
Norðurlöndum og Bretlandi, en vinnur þó einnig á öðrum mörkuðum. FL Group er
skráð á OMX Nordic Exchange í Reykjavík (OMX: FL). Í lok mars 2007 námu
heildareignir félagsins 303 milljörðum króna og markaðsvirði þess var 236
milljarðar. 

Stærstu hluthafar FL Group eru: Gnúpur fjárfestingafélag (20,2%); Oddaflug B.V
(19,8%), í eigu Hannesar Smárasonar, forstjóra félagsins; Baugur Group (19,4%)
og Icon og Materia Invest (10,7%). Í sumum tilvikum eru hlutir skráðir á nafn
íslenskra fjármálafyrirtækja vegna framvirkra samninga. Frekari upplýsingar má
finna á www.flgroup.is
GlobeNewswire