- Sátt um eignarhald á Hitaveitu Suðurnesja


Reykjanesbær, Hafnarfjarðarbær, Orkuveita Reykjavíkur og Geysir Green Energy
ehf. hafa gert með sér samkomulag sem hluthafar í Hitaveitu Suðurnesja hf.
(HS). Það er einróma alit samningsaðila að með þessu verði eignarhaldi HS komið
í tryggar skorður og eru nýir hluthafar HS einhuga um að vinna ötullega að
vexti og viðgangi fyrirtækisins sem sjálfstæðs og öflugs orkufyrirtækis.
Höfuðstöðvar HS verða áfram í Reykjanesbæ. 

Samkomulagið fjallar um eignarhald þessara aðila á HS, um samstarf þeirra innan
félagsins ogum framtíðaráherslur í starfi HS. Í samstarfinu er einnig kveðið á
um aðkomu Orkuveitu Reykjavíkur og Geysis að ýmsum málum á Suðurnesjum, þ.m.t.
málum sem varða Keili, Atlantic Center of Excellence, á fyrrum varnarsvæðinu á
Keflavíkurflugvelli. OR og Geysir hyggjast einnig veita fjárhagslegan og
félagslegan stuðning við menningar-, íþrótta- og áhugafélög á starfssvæði
Hitaveitu Suðurnesja. 

Samkvæmt kaupsamningum sem gerðir hafa verið verður eignarhlutur Reykjanesbæjar
34,75%, eignarhlutur Geysis 32,0%, eignarhlutur Hafnarfjarðarbæjar 15,42% og
eignarhlutur Orkuveitu Reykjavíkur 16,58%. Sveitarfélögin fjögur á Suðurnesjum;
Grindavík, Sandgerði, Garður og Vogar halda samtals 1,25% eignarhlut í HS.
Núverandi hluthafar HS munu ekki beita forkaupsrétti sínum í þeim viðskiptum
sem framundan eru. 

Hafnarfjarðarbær og Orkuveita Reykjavíkur hafa auk þess gert með sér samkomulag
um sölurétt Hafnarfjarðarbæjar á hlut sínum í HS til Orkuveitu Reykjavíkur og
við nýtingu slíks réttar yrði hlutur Orkuveitunnar í HS samtals 32,0%. 

Gert er ráð fyrir því að stjórn HS verði skipuð 7 mönnum; þremur frá
Reykjanesbæ, tveimur frá Geysi Green Energy, einum frá OR og einum frá
Hafnarfjarðarbæ. 


Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ
„Það er okkur í Reykjanesbæ mikið ánægjuefni að þeir aðilar sem sýnt hafa
framtíð HS hvað mestan áhuga hafi náð að stilla saman strengi sína um framtíð
félagsins. Þessi niðurstaða fellur vel að markmiðum okkar bæjarfélags um
uppbyggingu Hitaveitu Suðurnesja á Suðurnesjum því aðilar eru sammála um að HS
hafi mikla framtíðarmöguleika og munu styðja þá uppbyggingu sem framundan er
hjá félaginu.“ 


Gunnar Svavarsson, Hafnarfirði
Viljayfirlýsingin og hluthafasamkomulagið tryggir stöðu Hafnarfjarðarbæjar og
íbúa sveitarfélagsins innan Hitaveitu Suðurnesja hf. Það var það verkefni sem
við Hafnfirðingar unnum að auk þess sem nú bætast við nýir hluthafar sem munu
gefa félaginu aukinn kraft til frekari uppbyggingar. Við höfum átt gott
samstarf innan HS hf. og þrátt fyrir að nú liggi fyrir sölutilboð okkur til
handa, munu þeir hlutir verða skoðaðir í fyllingu tímans. Niðurstaðan er góð
fyrir félagið og góð fyrir þá hluthafa sem standa að Hitaveitu Suðurnesja, það
er bjart framundan hjá félaginu. 


Ásgeir Margeirsson, forstjóri Geysir Green Energy:
Við hjá Geysi erum ánægð með þá lausn sem aðilar málsins hafa komið sér saman
um og fögnum því mjög að vera aðilar að þessu samkomulagi og þeirri framtíð sem
með því er tryggð fyrir Hitaveitu Suðurnesja. Hitaveita Suðurnesja er gott
félag með gott fólk innanborðs sem hefur möguleika á að starfa við hlið okkar í
útflutningi á íslenskri þekkingu á sviði orkumála. 

Við teljum það mikið ábyrgðarhlutverk að vera hluthafi í fyrirtæki eins og
Hitaveitan er og það er okkar markmið að félagið haldi áfram að vaxa og dafna,
öllum hagsmunaaðilum félagsins, viðskiptavinum og öðrum til heilla. Þetta
samstarf treystir grunninn undir íslenska orkuútrás. 


Haukur Leósson, stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur:
Ég er ánægður með samkomulagið og tel að það se byrjunin a góðu samstarfi
fyrirtækjanna þriggja Í framtíðinni hvort sem er hér heima eða erlendis. Þá er
gott að áform ríkisstjórnarinnar gerðu meira en að ganga eftir. Þar sem nú eru
rúm. 30% komin í hendur einkaaðila í stað þeirra 15% sem áætluð voru. 


Júlíus Jón Jónsson, forstjóri Hitaveitu Suðurnesja:
Ég fagna því að þessi mál skuli hafa verið leyst og bind miklar vonir við að
samstarf við öfluga aðila m.a. á sviði útrásar og frekari virkjana komi til með
að efla og styrkja fyrirtækið enn frekar í framtíðinni, viðskiptavinum,
starfsmönnum og eigendum til farsældar. 


Frekari upplýsingar veitir Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar og
formaður stjórnar Hitaveitu Suðurnesja hf. í síma 893 - 3056 
GlobeNewswire