Í dag þriðjudaginn 31. júlí heldur Össur hf. símafund fyrir fjárfesta og markaðsaðila. Klukkan 12:00 að staðartíma verður haldinn símafundur á ensku. Unnt verður að hlusta á fundinn á heimasíðu Össurar: www.ossur.com. Vinsamlegast hringið í eftirfarandi símanúmer til að taka þátt í fundinum: Símanúmer fyrir Evrópu: +44 (0) 20 7162 0125 Símanúmer fyrir Bandaríkin: +1 334 420 4950 Einnig er unnt að senda fyrirspurnir til fundarins, sem haldinn er á ensku, með tölvupósti á investormeeting@ossur.com Opnir fundir með stjórnendum fyrirtækisins þar sem farið er yfir reksturinn verða haldnir a.m.k. tvisvar á ári, í staðinn fyrir eftir hvern fjórðung. Í kjölfar þessa uppgjörs fyrir annan ársfjórðung, verður ekki haldinn fundur. Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast á heimasíðu Össurar: www.ossur.com og á vef Kauphallar Íslands/ OMX Nordic Exchange (www.omxgroup.com/nordicexchange/marketnews/companynotices) jafnhliða fréttatilkynningunni.