2007


Lykiltölur, samstæðureikningur:

•  Tap eftir skatta í samstæðureikningum Atorku Group hf., fyrstu 6 mánuði
   ársins var 226 milljónir króna.
 
•  Tap á öðrum ársfjórðungi var 685 milljónir króna.

•  Tekjur á fyrri helmingi ársins voru 39,1 milljarðar króna.

•  Heildareignir samstæðunnar í lok júní voru 99 milljarðar króna.

•  Eigið fé var 9,6  milljarðar í lok júní.

•  Um 5 milljarða krónu söluhagnaður af sölu Jarðborana kemur fram á þriðja
   ársfjórðungi í samstæðureikningi. 

•  EBITDA félaga í plastiðnaði þ.m.t. Promens á fyrstu 6 mánuðum ársins var
   3.253 milljónir króna. 

•  EBITDA félaga í orku- og verktakaiðnaði þ.m.t. Jarðboranir á fyrstu 6 mánuðum
   ársins var 874 milljónir króna. 


Lykiltölur móðurfélags:
	
•  Hagnaður eftir skatt á fyrstu sex mánuðum ársins var rúmlega 6 milljarðar
   króna.
 
•  Hagnaður eftir skatt á öðrum ársfjórðungi var rúmlega 3 milljarðar króna. 

•  Heildareignir í lok júní voru 54,8 milljarðar króna. 

•  Eigið fé var 21,5 milljarðar króna í lok júní.

•  Arðsemi eigin fjár nam 70% á ársgrundvelli.

•  Eiginfjárhlutfall er 39%

•  Hagnaður á hlut á fyrstu 6 mánuðum ársins nam 1,91


Helstu viðburðir
 
•  Allur eignarhlutur í Jarðborunum seldur til Geysir Green Energy. Heildarvirði
   (Enterprise Value) sölunnar var 17,7 milljarðar króna. Innleystur hagnaður
   frá upphafi fjárfestingarinnar er um 11 milljarðar króna þar af á fjórða
   milljarð á öðrum ársfjórðungi í móðurfélagsreikningi. 

•  Atorka gerðist kjölfestufjárfestir í Geysir Green Energy og keypti 32% hlut.
   Kaupverð voru rúmir 7 milljarðar króna. 

•  Jarðboranir stofnuðu Hekla Energy í Þýskalandi til að mæti aukinni útrás
   félagsins. Hekla Energy mun sjá um borframkvæmdir í Þýskalandi og víðar í
   Evrópu.
 
•  Jarðboranir stórefldu borflota sinn og festu kaup á 3 hátæknivæddum stórborum
   fyrir um 6 milljarða króna til að annast borverkefni erlendis.
 
•  Nýtt skipurit Promens innleitt í júlí til að styðja við frekari samþættingu
   og vöxt.
 
•  Promens lauk yfirtöku á plastframleiðslufyrirtækinu Dekoplast í Frakklandi
   sem framleiðir umbúðir fyrir snyrtivöru- og lyfjaframleiðendur. 

•  Eignarhlutur í Amiad var aukinn í 20%. Amiad Filtration er leiðandi á
   alþjóðamarkaði í framleiðslu á vatnshreinsibúnaði. Mikill vöxtur er á þessum
   markaði og er vaxandi eftirspurn eftir hreinu vatni. 

•  Þrjú fyrirtæki á heilbrigðismarkaði, Icepharma, Parlogis og Ilsanta voru
   seld. 


Magnús Jónsson forstjóri Atorku;
„Afkoman á fyrstu 6 mánuðum ársins er mjög góð. Vel heppnuð sala á Jarðborunum
er til vitnis um árangursríka framkvæmd á fjárfestingarstefnu félagsins. Með
sölunni innleysti Atorka verulegan hagnað og fjárhagsstaða félagsins er sterk. 
Við erum orðin kjölfestufjárfestir í Geysir Green Energy og teljum það vera
mjög spennandi fjárfestingarkost. Í Geysi Green Energy sjáum við mikil tækifæri
til að skapa veruleg verðmæti með þátttöku í uppbyggingu þess. Önnur
fjárfestingarverkefni Atorku ganga vel, uppbyggingin á Promens gengur vel og
unnið er að undirbúningi fyrir skráningu félagsins. Fjárfestingargeta okkar er
mikil og félagið er í góðri stöðu til að nýta sér markaðsaðstæður sem nú eru
fyrir hendi.“ 


Nánari upplýsingar veita;

Magnús Jónsson, forstjóri í síma 840 6240 

Valdís Arnardóttir, kynningarstjóri í síma 840 6217 


Reikninga Atorku Group má finna á heimasíðu félagsins www.atorka.is 


Um Atorku Group
Atorka er fjárfestingarfélag sem styður framsækin fyrirtæki, sem njóta góðs af
hnattrænni þróun, til leiðandi hlutverks á heimsvísu. Í fjárfestingum sínum
leggur Atorka áherslu á að rekstur fyrirtækjanna sé öflugur og hafi sterkt
stjórnendateymi og að fyrirtækið starfi við góð skilyrði til verulegs innri og
ytri vaxtar. Gert er ráð fyrir að tímalengd verkefnanna sé um 3-5 ár og að
mikil tækifæri séu til vaxtar og verðmætaaukningar.

Attachments

atorkgroup-presentation.pdf atorka group 30.6 2007 samstaeda.pdf arshlutareikningur atorku mour 30 6 2007.pdf atorka group-h1-2007-isl.pdf
GlobeNewswire