2007


Hagfelld rekstrarskilyrði fyrir Straumborg ehf. á fyrri helmingi ársins

Straumborg ehf. er eignarhaldsfélag en tilgangur þess er m.a. fjárfestingar og
eignarhald á hlutabréfum og þátttaka í öðrum atvinnurekstri. 

Gert er samstæðuuppgjör fyrir Straumborg og dótturfélög. Stærsta eign
samstæðunnar er í Kaupþingi banka. 

Rekstrarskilyrði Straumborgar hafa að mestu leyti verið afar hagfelld á fyrri
hluta ársins. Hagnaður Straumborgar ehf. á tímabilinu 1/1 - 30/6 2007 nam 4.452
milljónum króna. Samkvæmt efnahagsreikningi námu eignir samstæðunnar í lok
tímabilsins 42.965 milljónum króna, bókfært eigið fé í lok tímabilsins var
16.710 milljónir króna, arðsemi eiginfjár á ársgrundvelli 88% og
eiginfjárhlutfall 38,9%. Straumborg ver eigið fé sitt í evrum en gerir upp
reikninga sína í krónum. Hafði styrking krónunnar á fyrri hluta ársins því
neikvæð áhrif á arðsemi félagsins í krónum talið. 

Horfur
Rekstur Straumborgar gengur vel og gera forsvarsmenn Straumborgar ráð fyrir að
rekstrarniðurstöður ársins verði vel viðunandi. Horfur á þeim mörkuðum sem
félagið starfar á eru að mestu leyti hagstæðar og rekstur allra félaga innan
samstæðunnar er á áætlun. Hafa verður þó í huga að rekstur fjárfestingafélags
eins og Straumborgar er háður óvissu, svo sem þróun fjármálamarkaða og ýmsum
öðrum þáttum sem eru ekki á valdi félagsins. 

Helstu stærðir úr árshlutareikningi félagsins eru eftirfarandi: Sjá viðhengi.


Nánari upplýsingar um uppgjörið veita Gunnlaugur Jónsson og Hjalti Baldursson
framkvæmdastjórar Straumborgar í síma 575-2600.

Attachments

frettatilkynning vegna 6 manaa uppgjors - straumborg ehf .pdf arshlutareikningur straumborgar 30 6 2007 an undirritunar.pdf