Fjármálaráðherra hefur ákveðið að fela Seðlabanka Íslands útgáfu innlendra markaðsverðbréfa ríkissjóðs sem Lánasýsla ríkisins annast nú, en bankinn annast nú þegar umsýslu erlendra lána ríkissjóðs. Í ljósi þeirra breytinga sem orðið hafa á íslensku fjármálaumhverfi og á stöðu ríkisins á lánamarkaði er nú talið mögulegt að framkvæma lánaumsýslu ríkissjóðs með hagkvæmari hætti en verið hefur með því að flytja verkefni stofnunarinnar til Seðlabanka Íslands. Í Danmörku og Noregi sjá seðlabankar landanna um lánaumsýslu ríkissjóðs á grundvelli samninga milli fjármálaráðuneytis og þeirra. Helstu kostir þess að hafa heildarumsjón lánamála ríkissjóðs á einum stað eru að með því fæst betri yfirsýn og skilvirkari lána-, gjaldeyris- og lausafjárstýring og hagræðing næst hvað varðar fastan kostnað og nýtingu starfsmanna. Þar sem eitt meginhlutverk Seðlabankans snýr að peningamálastjórnun, sem þarf ekki alltaf að fara saman við hagkvæma lánastýringu ríkissjóðs, er hins vegar gert ráð fyrir að í samningi við Seðlabankann um þau verkefni sem Lánasýslan hefur haft með höndum, verði skýrt kveðið á um verkskiptingu milli aðila og um ákvörðunarvald fjármálaráðuneytisins í lánamálum og endanlegt úrslitavald ráðuneytisins gagnvart framkvæmd samningsins. Samningurinn, sem undirritaður var í dag, tekur gildi frá 1. október n.k. Lýkur þar með starfsemi Lánasýslu ríkisins en stofnunin verður síðan formlega lögð niður með lögum.
Recommended Reading
-
As stated in paragraph 6 in General Terms of Auction for Treasury bonds, the Government Debt Management offered the equivalent of 10% of the nominal value sold in the auction 21. August, at the price...
Read More -
Series RIKB 38 0215RIKS 29 0917Settlement Date 08/26/202608/26/2026Total Amount Allocated (MM) 6,1907,013All Bids Awarded At (Price / Yield) 96.830/6.90098.583/4.000Total Number of Bids...
Read More