Hluthafafundur verður haldinn í Tryggingamiðstöðinni hf. mánudaginn 8. október 2007 kl. 16.30 í húsakynnum félagsins, Aðalstræti 6, Reykjavík. Dagskrá: 1. Tillaga um breytingu á 1. mgr. 19. gr. samþykkta félagsins þannig að stjórn félagsins skuli skipuð þremur mönnum. 2. Tillaga um breytingu á 4. mgr. 19. gr. samþykktanna um að undirskrift meiri hluta stjórnarmanna sé skuldbindandi fyrir félagið. 3. Kjör nýrrar stjórnar í samræmi við samþykktir félagsins að teknu tilliti til þeirrar breytingar sem á þeim kunna að verða gerðar, sbr. lið 1 hér að framan. Framboð til stjórnar skal tilkynna skriflega til félagsstjórnar, Aðalstræti 6, Reykjavík, skemmst fimm dögum fyrir hluthafafundinn. Í tilkynningunni skal greina nafn frambjóðanda, kennitölu, heimilisfang, upplýsingar um aðalstarf, önnur stjórnarstörf, menntun, reynslu og hlutafjáreign í félaginu, svo og hagsmunatengsl við helstu viðskiptaaðila og samkeppnisaðila félagsins, sem og hluthafa sem eiga meira en 10% í félaginu. Hluthöfum gefst kostur á að greiða atkvæði um tillögurnar bréflega. Atkvæðaseðlar eru fyrirliggjandi á skrifstofu félagsins frá og með fimmtudeginum 4. október n.k. og þar er ennfremur hægt að greiða atkvæði. Þeir hluthafar sem þess óska skriflega fyrir fimmtudaginn 4. október geta fengið atkvæðaseðla senda sér. Bréfleg atkvæði skulu berast á skrifstofu félagsins eigi síðar en kl. 12.00 mánudaginn 8. október eða afhendast á hluthafafundinum sjálfum. Atkvæði verða talin á hluthafafundinum þann 8. október og verða einungis atkvæði þeirra hluthafa sem þá eru skráðir í hlutaskrá tekin með í atkvæðagreiðslunni.