- SS byggir nýtt frystihús á Hvolsvelli og flytur afgreiðsludeild austur til Hvolsvallar


Fyrirhugaðar eru breytingar til hagræðingar í vöruafgreiðslu framleiðsluvara
sem tengjast væntanlegum flutningi fyrirtækisins til Hádegismóa. 

Sláturfélagið hefur rekið vörulager og afgreiðsludeild í höfuðstöðvum sínum að
Fosshálsi 1 frá árinu 1993 og þar áður á Skúlagöru 20. 

Undanfarin ár hefur verið unnið að framtíðarskipulagi þessa hluta af rekstri
félagsins og meðal annars verið leitað eftir lóð hjá Reykjavíkurborg en SS
hefur haft höfuðstöðvar sínar í Reykjavík allt frá stofnun félagsins árið 1907. 

Nýlega var félaginu formlega úthlutað lóð við Hádegismóa. 

Í tengslum við væntanlegan flutning á starfseminni hefur verið skoðað hvernig
hámarks hagkvæmni sé náð. Niðurstaðan er að birgðahaldi innflutningsvara verður
úthýst til Eimskips og afgreiðsla á framleiðsluvörum verður flutt til
Hvolsvallar. 

Frystigeymslu á Hvolsvelli verður breytt í kæli og afgreiðsludeild. Nýtt
frystihús verður byggt í staðinn. Áætlað er að flutningur starfseminnar verði
haustið 2008 og með henni færist 10-15 störf til Hvolsvallar. Áætlað er að
kostnaður við vöruafgreiðslu lækki um u.þ.b. 20 milljónir króna á árið við
þessa breytingu. 

Núverandi starfsfólki verður boðinn forgangur að vinnu hjá félögum sem tengd
eru Sláturfélaginu og hafa starfsemi í Reykjavík. Þetta eru félögin Hollt &
gott ehf. og Ísfugl hf. Því starfsfólki sem vill fylgja starfseminni til
Hvolsvallar verður boðin aðstoð við það. 

Nánari uppl. veitir Steinþór Skúlason forstj. í s. 575 6000.
GlobeNewswire