- Tillögur fyrir hluthafafund 8. október 2007 og framboð til stjórnar


Á hluthafafundi sem haldinn verður í Tryggingamiðstöðinni hf. 8. október 2007
kl. 16.30 í húsakynnum félagsins, Aðalstræti 6, Reykjavík, verða eftirfarandi
tillögur um breytingar á 19. gr. samþykkta félagsins bornar undir atkvæði: 

a.   Að 1. og 2. mgr. 19. gr. hljóði svo:
     Stjórn félagsins skal skipuð þremur mönnum.  Stjórnarmenn og
     framkvæmdastjóri 
     skulu fullnægja þeim skilyrðum sem kveðið er á um í 66. gr. laga nr.
     2/1995 um 
     hlutafélög og 2. mgr. 43. gr. laga nr. 60/1994 um vátryggingastararfsemi. 
     Aðalfundur félagsins kýs stjórn og skal kjörtímabil stjórnarmanna vera til
     næsta aðalfundar. Ef hluthafar, sem ráða yfir minnst 1/10 hlutafjárins,
     krefjast þess, skal beita hlutfallskosningu eða margfeldiskosningu við kjör
     stjórnarmanna.  Krafa um þetta skal hafa borist stjórn félagsins minnst
     fimm dögum fyrir aðalfund.  Nú koma fram kröfur frá fleiri en einum
     hluthafahóp og krafist er bæði hlutfalls- og margfeldiskosningar og skal
     þá beita margfeldiskosningu. 

b.   Að 4. mgr. 19. gr. hljóði svo:
     Undirskrift meiri hluta stjórnarmanna er skuldbindandi fyrir félagið.  Á
     stjórnarfundum ræður afl atkvæða úrslitum og eru stjórnarfundir lögmætir
     þegar allir stjórnarmenn eru mættir.  Stjórnin skal bóka stutta skýrslu um
     það er fram fer á fundum hennar og staðfestist hún með undirskrift
     stjórnarmanna. 

Eftirtaldir hafa boðið sig fram til setu í stjórn félagsins:

Gunnar Karl Guðmundsson, kt. 141259-2029, Háabergi 25, Hafnarfirði,
Jón Sigurðsson, kt. 180378-4219, Unnarbraut 17, Seltjarnarnesi,
Þorsteinn Már Baldvinsson, kt. 071052-4359, Barðstúni 7, Akureyri.

Upplýsingar um frambjóðendurna liggja frammi hluthöfum til sýnis á skrifstofu
félagsins. 

Fjármálaeftirlitið hefur til meðferðar umsókn FL Group hf. og dótturfélags
þess, Kjarrhólma ehf., um virkan eignarhlut í Tryggingamiðstöðinni hf. samkvæmt
39. gr. laga um vátryggingastarfsemi nr. 60/1994.  Þar sem framangreindir
aðilar hafa ekki hlotið samþykki Fjármálaeftirlitsins til meðferðar á hinum
virka eignarhlut fer FL Group hf. og dótturfélög þess ekki með meira en 9,99%
atkvæðisrétt í félaginu. 


	Stjórn Tryggingamiðstöðvarinnar hf.
GlobeNewswire