Sigurður Viðarsson hefur verið ráðinn forstjóri Tryggingarmiðstöðvarinnar (TM) og mun hefja störf nú þegar. Samkomulag er milli stjórnar TM og Óskars Magnússonar forstjóra, sem starfað hefur hjá TM frá 2004, um að hann láti formlega af störfum þann 15. nóvember næstkomandi. Sigurður Viðarsson er viðskiptafræðingur fá Háskóla Íslands og hefur starfað hjá Kaupþingi líftryggingum frá árinu 1997. Sigurður var síðast forstöðumaður fjármála- og vátryggingarsviðs og staðgengill forstjóra. Hjá Kaupþingi líftryggingum hefur hann m.a. borið ábyrgð á samskiptum við endurtryggjendur, vöruþróun og rekstri vátryggingastofns félagsins. Gunnar Karl Guðmundsson, stjórnarformaður TM: ,,Við bjóðum Sigurð velkominn til starfa hjá Tryggingarmiðstöðinni. Hann hefur umfangsmikla reynslu á íslenskum tryggingarmarkaði og mun koma inn í öflugan hóp stjórnenda félagsins. Við stefnum að því að efla enn frekar stöðu TM á Íslandi, samhliða því sem við munum styrkja okkar starfsemi í Noregi. Fyrir hönd stjórnar TM, þakka ég Óskari fyrir vel unnin störf hjá félaginu“. Sigurður Viðarsson, forstjóri TM: “Það er ánægjulegt að vera kominn til liðs við TM en ég hef fylgst með framgangi félagsins á undanförnum árum og því góða starfi sem þar hefur verið unnið. Sóknarfæri TM eru víða og með samstilltum hópi stjórnenda munum við leitast við að nýta þau tækifæri, bæði á Íslandi og erlendis.” Óskar Magnússon fráfarandi forstjóri TM: ,,Það er bæði sjálfsagt og eðlilegt við jafn miklar breytingar og nú hafa orðið á eignarhaldi TM að forstjóri eins og ég láti af störfum. Ég óska nýjum eigendum til hamingju með kaupin á félaginu og nýjum forstjóra óska ég velgengni í starfi.'' Nánari upplýsingar veitir: Sigurður Viðarsson Forstjóri Sími: 515-2000 Um Tryggingarmiðstöðina TM hefur verið starfandi á Íslandi frá árinu 1956 og býður einstaklingum og fyrirtækjum tryggingar og ýmiskonar fjármálaþjónustu. TM er eitt af þremur stærstu tryggingarfélögum á Íslandi með um 24% markaðshlutdeild. Stærstur hluti starfsemi TM er á Íslandi en þar að auki á það norska tryggingarfélagið Nemi Forsikring ASA. Hjá félaginu stafa rúmlega 130 manns á Íslandi og yfir 50 manns í Noregi.
- Sigurður Viðarsson tekur við starfi forstjóra Tryggingarmiðstöðvarinnar
| Source: Tryggingamiðstöðin hf.