Leiðrétting í fyrirsögn Árshlutareikningur félagsins hefur að geyma samandreginn samstæðureikning félagsins og dótturfélaga þess. Hann var samþykktur af stjórn og forstjóra félagsins 30. október 2007. Árshlutareikningur félagsins er nú í fyrsta sinn gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS). Innleiðing staðlanna hefur óveruleg áhrif á reikningsskil félagsins. Lykiltölur í millj. kr. - samstæða • Hagnaður tímabilsins 1. mars til 31. ágúst 2007 nam 715 millj. kr. en tap fyrir sama tímabil árið áður nam 44 millj. kr. • Rekstrartekjur tímabilsins 1. mars til 31. ágúst 2007 námu 25.474 millj. kr. en námu 22.241 millj. kr. fyrir sama tímabil árið áður. • Heildareignir samstæðunnar í lok tímabilsins námu 26.068 millj. kr. en námu 23.616 millj. kr. í febrúarlok 2007. • Eigið fé félagsins í lok tímabilsins nam 8.965 millj. kr. en nam 6.538 millj. kr í febrúarlok 2007. • Eiginfjárhlutfall félagsins var 34,4% Nánari upplýsingar veitir Finnur Árnason, forstjóri félagsins í síma 530 5500
Recommended Reading
-
Í viku 35 keyptu Hagar hf. 1.110.000 eigin hluti að kaupverði kr. 135.531.000 eins og hér segir: DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverð (kr.)Eigin hlutir eftir...
Read More -
Hagar hf. luku í dag, 27. ágúst 2026, útboði skuldabréfa í flokknum HAGA 130629 1. HAGA 130629 1 er almennur skuldabréfaflokkur sem ber breytilega vexti tengda 1 mánaðar REIBOR að viðbættu 1,00%...
Read More