Í dag hefjast viðskipti með hlutabréf East Capital Explorer's í OMX Nordic Exchange í Stokkhólmi en það er þrítugasta og þriðja félagið sem er skráð á aðalmarkað Nordic Exchange á þessu ári. East Capital Explorer AB er sænskt félag sem var stofnað nýlega og mun veita okkar breiða hópi fjárfesta einstök fjárfestingartækifæri í Austur-Evrópu. Félagið mun einbeita sér að fjárfestingum í óskráðum félögum og félögum sem eru að hluta til á markaði ört vaxandi atvinnugeira í Austur-Evrópu og hafa fengið East Capital til að annast fjárfestingarstarfsemi sína. „Á þessu ári höfum við getað fjölgað mjög nýjum fjárfestingarkostum í Nordic Exchange og enn fleiri eru að bætast við. Sem dæmi má nefna East Capital Explorer, meðalstórt félag sem í dag verður tekið til viðskipta á aðalmarkaðnum. Með því fær Nordic Exchange til sín félag af nýrri gerð sem einnig er dæmi um þann áhuga sem vaknaður er á nýmörkuðum. Sem önnur dæmi má nefna FirstFarms á aðalmarkaðnum og Trigon Agri og EOS Russia á First North,“ segir Jenny Rosberg, forstjóri OMX Company Services. Viðskiptalota hlutabréfa East Capital Explorer AB, sem hefur auðkennið ECEX, er 100. Félagið flokkast með meðalstórum félögum í fjármálageiranum. Nánari upplýsingar veitir Maria Andark, OMX +46 8 405 73 74 UM OMX | OMX er leiðandi aðili í kauphallarviðskiptum. OMX Nordic Exchange nær til yfir 800 félaga, þar með talinn hliðarmarkaðinn First North. OMX þróar upplýsingatæknikerfi fyrir rúmlega 60 kauphallir, greiðslustofnanir og verðbréfamiðstöðvar í rúmlega 50 löndum. Nordic Exchange er ekki lögaðili en hugtakið lýsir sameiginlegri þjónustu kauphallanna í Helsinki, Kaupmannahöfn, Stokkhólmi, Íslandi, Tallinn, Ríga og Vilníus. OMX er í fjármálageira og er flokkað með stórum félögum í OMX Nordic Exchange (e. Nordic Large Cap). Nánari upplýsingar er að finna á slóðinni www.omxgroup.com.
Nordic Exchange býður East Capital Explorer velkomið - nýjan fjárfestingarkost
| Source: Nasdaq Nordic