Leiðréttingar á ársreikningi fyrir árið 2007: Eftirfarandi breytingar hafa verið gerðar á skýringum á áður birtum ársreikningi: Skýringu 3.12 d Síðastu línu var eytt í skýringunni. "The Bank's amortisable intangible assets consist of software, whose estimated useful life is 4 years." Í skýringu 2.3b Orðinu semi-annually var breytt í quarterly í eftirfarandi setningu: “For this purpose the Bank's management reviews its loan portfolios to assess impairment on a quarterly basis “ Skýring 14 Heildartala fyrir skuldabréf var breytt úr 1.799 í 3.567 og heildartölu fyrir lántöku og tengdum afleiðum frá því að vera neikvæð um 1.901 í að vera jákvæðu um 1.901. Heildartala er óbreytt. Skýring 19 Laun fjögurra fyrrverandi stjórnarmanna er nú sett fram fyrir hvern og einn í stað þess að birta samtölu fyrir þá. Skýring 75 Tölur fyrir nokkra atvinnugreinar var breytt í töflunni "categorised by industry sectors". Skýring 81 Tafla um eignir og skuldir flokkaðar eftir gjaldmiðlum hefur verið breytt, tölu fyrir eigið fé (equity) hefur verið bætt við sem var ekki áður, því breytist samtalan í töflunni um skuldir sem og hrein gjaldeyrisstaða. Afkoma Glitnis banka fyrir árið 2007 Hagnaður samstæðu 27,7 milljarðar króna eftir skatta - Arðsemi eigin fjár 19,3% Helstu niðurstöður: * Hreinar rekstrartekjur jukust um 17,2% milli ára * Hagnaður fyrir skatta á 4. ársfjórðungi nam 3,8 milljörðum króna miðað við 10,4 milljarða á 3. ársfjórðungi * Hreinar vaxtatekjur á 4. ársfjórðungi voru 11,9 milljarðar og hækkuðu um 54,6% frá 4. ársfjórðungi 2006 * Þóknanatekjur á 4. ársfjórðungi ársins námu 10,6 milljörðum og jukust lítillega frá sama ársfjórðungi 2006 * 52% af hagnaði bankans fyrir skatta á árinu 2007 myndaðist af starfsemi utan Íslands * Hagnaður á hlut var 0,19 krónur á fjórðungnum og 1,86 krónur yfir árið samanborið við 2,68 krónur árið 2006 * Heildareignir í árslok voru 2.949 milljarðar en voru 2.246 milljarðar í ársbyrjun 2007 * Eignir í stýringu drógust saman um 6,7% frá fyrri ársfjórðungi, vegna sölu bankans í Glitnir Property Holding, en heildarvöxtur yfir árið nam 91% og eru nú 936 milljarðar króna * Eiginfjárhlutfall á CAD grunni var 11,2 %, þar af var A-hlutfall 8,1 % Tíðindi af tímabilinu * Tekjur af kjarnastarfsemi eru traustar, jukust um 36% á milli ára * Glitnir hefur skipað sér í fremstu röð á sviði hlutabréfamiðlunar á Norðurlöndunum * Óhagstæðar markaðsaðstæður hafa neikvæð áhrif á afkomuna á 4 ársfjórðungi * Kostnaðarhlutföll yfir ásættanlegum mörkum, má rekja að hluta til einskiptiskostnaðar sem fellur til á árinu * Traust lausafjárstaða við erfiðar markaðsaðstæður * Aukinn alþjóðlegur vöxtur byggður á sérþekkingu Lárus Welding, forstjóri Glitnis. "Þegar ég lít yfir afkomutölurnar er ánægjulegt að sjá svo góðan vöxt í hreinum vaxta- og þóknanatekjum eins og raun ber vitni. Þóknanatekjur bankans voru stöðugar á árinu og námu samtals um 37,6 milljörðum króna, sem er um 42% aukning frá árinu áður. Ég er einnig ánægður að sjá tekjur af kjarnastarfsemi bankans vaxa á nýjan leik þar sem vöxturinn nam um 21% á ársgrundvelli auk þess sem traust útlánasafn bankans tryggir okkur góðar vaxtatekjur á þessu ári.""Markaðssyllur Glitnis, sjávarútvegur, jarðhiti og þjónustuskip við olíuiðnaðinn hafa vaxið sem hluti af lánabók bankans, eða úr 11% árið 2006 í 13% 2007. Með því að byggja upp sérþekkingu á þessum þremur sviðum erum við í raun að fjárfesta í framtíðarvexti bankans. Þá hefur Glitnir einnig skipað sér í fremstu röð á sviði hlutabréfamiðlunar á Norðurlöndunum." "Á árinu 2007 hefur Glitnir fjárfest í ytri og innri vexti og endurspeglast sá vöxtur m.a. í auknum kostnaði í tengslum við samþættingarverkefni, opnun nýrra starfsstöðva auk kostnaðar sem féll til vegna stjórnendaskipta. Við höfum hinsvegar nú gert skipulagsbreytingar sem miða að því að auka hagkvæmni og kostnaðaraðhald og gera rekstrarábyrgð, ákvarðanatöku og boðleiðir skýrari undir forystu stjórnenda á hverju markaðssvæði fyrir sig." "Markaðsaðstæður síðustu mánaða hafa verið öllum fjármálafyrirtækjum erfiðar. Glitnir er hins vegar í góðri stöðu til að takast á við núverandi aðstæður með yfir 6 milljarða evra í lausafé og sterkan undirliggjandi tekjugrunn. Lánasafnið okkar er áhættudreift og byggt á traustum og góðum eignum." "Ég er fullviss um að þessar áherslur í stefnu Glitnis skapa okkur nauðsynlegar undirstöður fyrir frekari vöxt á öllum afkomusviðum bankans", sagði Lárus Welding. Nánari upplýsingar veita: Lárus Welding Forstjóri sími: 440 4005 Alexander K. Guðmundsson Framkvæmdastjóri fjármálasviðs sími: 440 4656 Vala Pálsdóttir Forstöðumaður fjárfestatengsla sími: 440 4989 eða vp@glitnir.is Reikninga Glitnis er að finna á slóðinni www.glitnir.is.
2007 - Leiðrétting - Frétt birt 2008-01-31 15:50:28 CET
| Source: Glitnir banki hf.