Aðalfundur 2008
Aðalfundur Tryggingamiðstöðvarinnar hf. verður haldinn mánudaginn 3. mars 2008
kl. 14.00 í húsakynnum félagsins, Aðalstræti 6, Reykjavk.
Dagskrá:
1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á síðastliðnu starfsári.
2. Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár ásamt skýrslu endurskoðenda
lagður fram til staðfestingar.
3. Ákvörðun um ráðstöfun tekjuafgangs félagsins, þ.m.t. greiðslu arðs.
4. Ákvörðun um tillögu stjórnar um starfskjarastefnu félagsins.
5. Ákvörðun um þóknun til stjórnar.
6. Kosning stjórnar félagsins.
7. Kjör endurskoðenda (endurskoðunarfélags).
8. Önnur mál löglega fram borin.
Framboð til stjórnar skal tilkynna skriflega til félagsstjórnar, Aðalstræti 6,
Reykjavík, skemmst fimm dögum fyrir aðalfundinn. Í tilkynningunni skal greina
nafn frambjóðanda, kennitölu, heimilisfang, upplýsingar um aðalstarf, önnur
stjórnarstörf, menntun, reynslu og hlutafjáreign í félaginu, hagsmunatengsl við
helstu viðskiptaaðila og samkeppnisaðila félagsins, sem og hluthafa sem eiga
meira en 10% í félaginu.
Reikningar félagsins og tillögur liggja frammi á aðalskrifstofu hluthöfum til
sýnis viku fyrir fundinn, en verða síðan afhent ásamt fundargögnum til hluthafa
á fundarstað.
Stjórn Tryggingamiðstöðvarinnar hf.