Eftirtalin framboð bárust með skriflegum hætti til stjórnar félagsins 5 dögum fyrir aðalfund: Nafn: Lýður Guðmundsson Kennitala: 170767-5199 Nafn: Rannveig Rist Kennitala: 090561-2359 Nafn: Erlendur Hjaltason Kennitala: 211157-7399 Nafn: Panikos J. Katsouris Kennitala: 270550-2159 Nafn: Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson Kennitala: 031260-3889 Nafn: Hildur Árnadóttir Kennitala: 040866-3459 Þar sem ekki hafa fleiri gefið kost á sér til setu í stjórn Skipta hf. innan lögboðins 5 daga frests verða ofangreindir aðilar sjálfkjörnir og þar með réttkjörnir til setu í stjórn Skipta hf. fyrir næsta kjörtímabil. Nánari upplýsingar um frambjóðendur liggja fyrir á skrifstofu Skipta, Ármúla 25, 108 Reykjavík. ________________________________________ Um Skipti hf. Skipti hf. er eignarhaldsfélag um rekstur fyrirtækja á sviði fjarskipta, upplýsingatækni og afþreyingar. Innan samstæðunnar eru Síminn, Míla, Já, Skjárinn, Sensa, Tæknivörur, Trackwell, On-Waves og Radiomiðun. Erlend dótturfélög eru fjarskiptafélögin Aerofone í Bretlandi, Business Phone og Ventelo í Danmörku og upplýsingatæknifyrirtækið Sirius IT sem er með starfsemi í Noregi, Svíþjóð og Danmörku.
Recommended Reading
-
Í 37. viku 2026 keypti Ásar hf. 2.500.000 eigin hluti að kaupverði 28.800.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir: DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverð (kr.)Eigin hlutir eftir...
Read More -
Ásar hf. telja rétt að upplýsa að Símanum ehf. hefur borist andmælaskjal Samkeppniseftirlitsins vegna rannsóknar stofnunarinnar á sölu félagsins (þá Símans hf.) á fjarskipta- og sjónvarpsþjónustu í...
Read More