Þær tillögur sem lagðar voru fyrir aðalfund Exista hf. fimmtudaginn 28. febrúar 2008 voru samþykktar samhljóða: 1. Eftirfarandi tillaga um ráðstöfun hagnaðar var samþykkt: Stjórn Exista hf. leggur til að aðalfundur, haldinn 28. febrúar 2008, ákveði að greiða ekki út arð vegna hagnaðar á rekstrarárinu 2007. 2. Eftirtaldir aðilar voru kjörnir í stjórn félagsins til eins árs: Ágúst Guðmundsson Bogi Óskar Pálsson Guðmundur Hauksson Hildur Árnadóttir Lýður Guðmundsson Robert Tchenguiz Sigurjón Rúnar Rafnsson 3. Eftirfarandi tillaga um endurskoðunarfélag fyrir tímabilið var samþykkt: Lagt er til að Deloitte hf., Stórhöfða 23, Reykjavík, verði endurkjörið endurskoðunarfélag Exista hf. fyrir árið 2008. 4. Eftirfarandi tillaga um þóknun til stjórnarmanna var samþykkt: Aðalfundur Exista hf., haldinn 28. febrúar 2008, samþykkir að stjórnarlaun vegna ársins 2008 verði sem hér segir: Stjórnarformaður 5.600 evrur á mánuði en aðrir stjórnarmenn 2.800 evrur á mánuði. Stjórnarmenn skulu auk þess fá fasta þóknun fyrir hvern fund sem þeir sitja í undirnefndum stjórnar og skal sú þóknun vera 500 evrur fyrir hvern fund. 5. Eftirfarandi tillaga um starfskjarastefnu var samþykkt: “Starfskjarastefna Exista hf. 1. gr. Markmið Markmið starfskjarastefnu þessarar er að gera það eftirsóknarvert að starfa hjá Exista hf. og skipa félaginu þannig í fremstu röð í alþjóðlegum samanburði. Til að svo megi verða er nauðsynlegt að stjórn félagsins hafi svigrúm til þess að bjóða samkeppnishæf laun og aðrar greiðslur sambærilegar þeim sem tíðkast hjá fyrirtækjum af svipuðum toga á alþjóðavettvangi. 2. gr. Starfskjör stjórnarmanna Stjórnarmönnum skal greidd föst mánaðarleg þóknun í samræmi við ákvörðun aðalfundar félagsins ár hvert, svo sem kveðið er á um í 79. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög. Skal stjórnin gera tillögu um þóknunina fyrir komandi starfsár og skal í þeim efnum taka mið af þeim tíma sem stjórnarmenn verja í að sinna skyldum sínum, þeirri ábyrgð sem á þeim hvílir, sem og starfsemi félagsins almennt. Stjórnarmenn skulu, auk hinnar föstu mánaðarlegu þóknunar, fá fasta greiðslu fyrir hvern fund sem þeir sitja í undirnefndum stjórnar og skal sú þóknun ákveðin af aðalfundi félagsins. 3. gr. Starfskjör forstjóra Gera skal skriflega ráðningarsamninga við forstjóra félagsins. Kjör þeirra skulu vera samkeppnishæf í alþjóðlegum samanburði. Fjárhæð grunnlauna og annarra greiðslna til forstjóra skal taka mið af menntun þeirra, reynslu og fyrri störfum. Tilgreina skal önnur starfskjör í ráðningarsamningnum, svo sem greiðslur í lífeyrissjóð, orlof, hlunnindi og uppsagnarfrest. Heimilt er að semja við forstjóra um upphafsgreiðslu vegna ráðningar þeirra til félagsins. Við starfslok skal almennt ekki samið um lífeyrisgreiðslur eða starfslokagreiðslur umfram það sem fram kemur í ráðningarsamningi. Sérstakar aðstæður kunna hins vegar að leiða til þess að gera þurfi sérstakan starfslokasamning við forstjóra sem kann að fela í sér lífeyris- eða starfslokagreiðslur. 4. gr. Umbun til stjórnenda og starfsmanna Forstjórum er heimilt að leggja til við stjórn félagsins að starfsmönnum og stjórnendum Exista, og/eða starfsmönnum og stjórnendum sérhvers dótturfélags Exista , sé á skilgreindu tímabili veitt umbun umfram samningsbundin launakjör, í formi afhendingar hluta, kaupréttar eða greiðslna sem tengjast hlutum í félaginu eða framtíðarverðmæti slíkra hluta. Forstjórum er enn fremur heimilt að leggja til við stjórn félagsins að starfsmenn og stjórnendur Exista skuli hljóta umbun til viðbótar samningsbundnum launum í formi árangurstengdra greiðslna, lánssamninga, greiðslna í lífeyrissjóði og eftirlauna- eða uppsagnargreiðslna. Taka skal tillit til stöðu viðkomandi einstaklings, ábyrgðar og framtíðarvæntinga til hans ásamt meginmarkmiðum starfskjarastefnu þessarar, þegar ákveða skal hvort viðkomandi starfsmaður skuli hljóta umbun umfram samningsbundin launakjör. Þegar kaupréttur er veittur skal tekið tillit til sambærilegra fyrri samninga milli félagsins og viðkomandi starfsmanns eða stjórnanda. Almennt helst kaupréttur aðeins gildur svo lengi sem viðkomandi einstaklingur er starfsmaður Exista eða dótturfélags Exista. 5. gr. Samþykkt starfskjarastefnu og önnur mál Starfskjarastefna félagsins skal lögð fyrir aðalfund til samþykktar. Hún skal tekin til endurskoðunar ár hvert. Starfskjarastefna þessi er bindandi fyrir stjórn félagsins að því er varðar kaupréttarsamninga eða hvers konar greiðslur sem stjórnendur fá í formi hluta, kaupréttar eða annars konar réttar til þess að eignast hlutabréf eða fá greiðslur sem byggjast á þróun hlutabréfaverðs, ásamt verulegum breytingum á slíkum samningum sbr. 2. mgr. 79. gr. a laga nr. 2/1995 um hlutafélög. Að öllu öðru leyti er starfskjarastefnan leiðbeinandi fyrir félagið. Stjórn félagsins skal færa til bókar í fundargerðarbók veigamikil frávik frá starfskjarastefnunni og skulu þau frávik studd greinargóðum rökum. Stjórn félagsins skal gera aðalfundi grein fyrir slíkum frávikum.” 6. Eftirfarandi tillaga um heimild félagsstjórnar til að breyta og gefa út hlutafé í evrum var samþykkt: Lagt er til að stjórn félagsins verði veitt heimild til að breyta hlutafé félagsins í evrur og til að gefa út nýja hluti í félaginu í evrum í stað íslenskra króna, telji stjórnin slíkt fýsilegt, sbr. heimild í 1. mgr. 4. gr. laga um hlutafélög nr. 2/1995. Ákvæði 5. mgr. 1. gr. laga um hlutafélög nr. 2/1995 skal gilda. Skal stjórn jafnframt vera heimilt að gera nauðsynlegar breytingar á samþykktum félagsins sem leiða af útgáfunni, þ.á. m. breyta fjárhæðum þeim sem fram koma í 4. gr. samþykkta félagsins og varða breytinguna, með sömu umreiknunaraðferð. 7. Eftirfarandi tillögur um breytingar á samþykktum voru samþykktar: A. Samþykkt var að breyta ákvæði 2. mgr. 4. gr. samþykkta félagsins sem hér segir: „Stjórn félagsins er heimilt að auka hlutafé þess um allt að 7.000.000.000 króna að nafnverði eða jafngildi þeirrar fjárhæðar í evrum, með áskrift allt að 7.000.000.000 nýrra hluta. Hluthafar falla frá forgangsrétti sínum skv. 34. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög og samkvæmt samþykktum þessum. Stjórn félagsins er þó heimilt að veita einstökum hluthöfum á hverjum tíma heimild til að skrá sig fyrir nýjum hlutum að hluta eða öllu leyti. Engar hömlur eru á viðskiptum með hina nýju hluti. Nýir hlutir skulu vera í sama flokki og með sömu réttindi og aðrir hlutir í félaginu. Þeir skulu veita réttindi í félaginu frá skrásetningardegi hlutafjárhækkunarinnar. Stjórn félagsins er falið að ákveða nánari útfærslu á hækkun þessari m.t.t. verðs og greiðsluskilmála. Stjórn félagsins er heimilt að ákveða að áskrifendur greiði fyrir hina nýju hluti að hluta eða öllu leyti með öðru en reiðufé. Heimild þessi gildir til 28. febrúar 2013 að svo miklu leyti sem hún hefur ekki verið nýtt fyrir það tímamark.“ B. Samþykkt var að breyta 1. mgr. 7. gr. samþykkta félagsins sem hér segir: „Félagið má eigi veita lán út á hluti sína nema lög leyfi. Félagsstjórn skal heimilt á næstu 18 mánuðum frá 28. febrúar 2008 að kaupa allt að 10% af eigin hlutum. Má kaupverð bréfanna verða allt að 20% yfir meðalsöluverði hluta skráðu á OMX Nordic Exchange á Íslandi á næstliðnum tveimur vikum áður en kaup eru gerð. Ekki eru sett lágmörk á heimild þessa, hvorki hvað varðar kaupverð né stærð hluta sem keyptir eru hverju sinni.“ Frekari upplýsingar veitir: Sigurður Nordal, framkvæmdastjóri samskiptasviðs. ir@exista.com 550 8620 / 860 8620