-Vöxtur í tekjum og EBITDA framlegð í samræmi við áætlanir- -Fjármagnsliðir munu lækka umtalsvert á þriðja ársfjórðungi- -Tap tímabilsins 39 milljónir evra vegna hárra fjármagnsliða- Helstu atriði úr uppgjörinu Tekjur á fyrsta ársfjórðungi námu 440,8 milljónum evra (1F 2007: 306,2 milljónir evra), sem er 44% tekjuaukning á milli ára. Undirliggjandi vöxtur samstæðunnar er um 10% á fjórðungnum og í samræmi við áætlanir stjórnenda. Góður árangur náðist í Bandaríkjunum og Kanada, minni vöxtur varð í Bretlandi en búist var við en allar aðrar einingar félagsins skiluðu vexti og afkomu eins og búist var við. Starfsemi Eimskips skiptist í tvær meginstoðir; flutningastarfsemi (sjóflutningar og tengdir flutningar) og hinsvegar rekstur kæli og frystigeymslna (einnig tengdir flutningar). • Tekjur af flutningastarfsemi námu 149,2 milljónum evra á fjórðungnum (1F 2007: 131 milljón evra) og undirliggjandi tekjuvöxtur nam tæpum 14%, sem skýrist m.a. af góðum rekstri á Norður Atlantshafs og Eystrasaltssvæðinu. • Tekjur af rekstri kæli og frystigeymslna námu 294,2 milljónum evra á fjórðungnum, sem endurspeglar um 9% undirliggjandi tekjuaaukningu milli ára. • Rekstrargjöld á tímabilinu námu 423,1 milljónum evra (1F 2007: 294,7 milljarðar evra) og jukust um 43,6% milli ára, í kjölfar kaupa á Versacold sem ekki var hluti af samstæðunni á 1F 2007. • Hagnaður fyrir fjármagnsliði, skatta og afskriftir (EBITDA) nam 39,7 milljónum evra á fjórðungnum (1F 2007: 25,5 milljónir evra) og jókst því um 55,6% á milli ára. Framlegðarstig hefur einnig aukist og er nú 9,0%, í samræmi við áætlanir stjórnenda. • Tap eftir skatta var 38,9 milljónir evra, samanborið við 5,6 milljóna evra tap 1F 2007. Tap á tímabilinu skýrist af háum fjármagnsliðum en stefnt er að sölu eigna á öðrum ársfjórðungi sem mun bæði lækka vaxtakostnað félagsins umtalsvert og minnka gengisáhættu vegna skulda í bandaríkjadal sem m.a. orsakar gengissveiflu á tímabilinu. o Heildarfjármagnskostnaðar er 39,1 milljónir evra á þriðja ársfjórðungi félagsins en eignasala á 2F mun skila verulegri lækkun á vaxtakostnaði frá og með 3F 2008. o Gengistap var 17,9 milljónir evra á fjórðungnum. Stefán Ágúst Magnússon, forstjóri Eimskips, um uppgjörið: “Árið fer ágætlega af stað hjá okkur og ánægjulegt að sjá góðan árangur í Norður Ameríku, eins er okkur að ganga vel að byggja upp starfsemi okkar í Asíu. Þá eru tekjur og framlegð í samræmi við okkar væntingar og munum við sjá hvorutveggja aukast á síðari hluta ársins. Fjármagnsliðir hafa mikil áhrif á afkomu félagsins á tímabilinu en við stefnum að því að ljúka sölu eigna í Norður Ameríku á öðrum ársfjórðungi, sem mun lækka vaxtakostnað félagsins umtalsvert. Samhliða undirliggjandi vexti samstæðunnar munum við halda áfram að samþætta starfsemina og ná fram samlegðaráhrifum frá nýlegum fyrirtækjakaupum.“ Upplýsingar um uppgjörið veita: Halldór Kristmannsson Framkvæmdastjóri Samskiptasviðs Eimskips Sími: 525 7000 / 825 7221 Póstfang: halldor.kristmannsson@eimskip.is Dögg Hjaltalín Forstöðumaður fjárfestatengsla Sími: 525 7225 / 825 7225 Póstfang: dogg@eimskip.is