Exista gerir tilboð í allt hlutafé Skipta


Stjórn Exista hf. ákvað á fundi sínum í morgun, 19. Mars 2008, að leggja fram
valfrjálst yfirtökutilboð í allt hlutafé Skipta hf. Tilboð Exista hljóðar upp á
6,64 krónur á hlut sem er sama verð og í nýafstöðnu hlutafjárútboði Skipta.
Greitt verður með nýjum hlutum í Exista sem verða verðlagðir í samræmi við
lokagengi á OMX ICE í gær, 18. mars, sem var 10,1 króna á hlut. Fyrirhugað er
að tilboðið standi í átta vikur. Verði gengið að tilboðinu mun Exista leggja
til við stjórn Skipta að óskað verði eftir afskráningu félagsins eins fljótt og
auðið er. 

Ástæða tilboðs Exista er sú að félagið telur ekki vera grundvöll fyrir eðlilega
verðmyndun með hlutabréf Skipta á markaði í ljósi niðurstöðu nýafstaðins
hlutafjárútboðs og þeirra óvenjulega erfiðu markaðsaðstæðna sem nú ríkja. Vegna
samþjappaðs eignarhalds og markaðsaðstæðna eru verulegar líkur á því að félagið
og hluthafar þess muni ekki njóta þeirra kosta sem fylgja skráningu í kauphöll.
Stefnt er að því að kanna skráningu félagsins á ný þegar aukið jafnvægi verður
komið á fjármálamörkuðum. 

Tilboðsverð og útgáfa nýs hlutafjár Exista
Það er mat Exista að tilboðsverðið, 6,64 krónur á hlut, endurspegli á
sanngjarnan hátt núverandi raunvirði Skipta í samanburði við önnur
fjarskiptafyrirtæki á markaði og nýlegar yfirtökur á sambærilegum fyrirtækjum. 
Exista og dótturfélög þess eiga þegar 43,68% hlutafjár í Skiptum og gerir
Exista tilboð í alla útistandandi hluti félagsins. 
Verði tilboðið samþykkt mun stjórn Exista nýta heimild í samþykktum félagsins
til útgáfu allt að 2.846.026.330 nýrra hluta í Exista. Hlutafé Exista mun því
að hámarki aukast úr 11.361.092.458 hlutum í allt að 14.207.118.788 hluti og
eigið fé félagsins mun aukast um allt að 28,7 milljarða króna. 
Tilboðið er háð skilyrði um samþykki samkeppnisyfirvalda að því marki sem það
kann að vera áskilið lögum samkvæmt. 

Ástæður tilboðs og afskráning
Skipti voru skráð á OMX ICE í dag, 19. mars 2008, í kjölfar hlutafjárútboðs.
Útboðið og skráning félagsins á hlutabréfamarkað var í samræmi við ákvæði
kaupsamnings sem upphaflega var gerður við sölu ríkisins á 98,8% hlut í
Landssíma Íslands hf. árið 2005. Í útboðinu, sem stóð frá 10. til 13. mars
2008, var almenningi og öðrum fjárfestum boðið að kaupa 30% hlutafjár
félagsins. Einungis seldust um 7,5% hlutafjár í félaginu. 
Ljóst er að hlutafjárútboð Skipta markaðist af óvenjulega erfiðum aðstæðum á
fjármálamörkuðum um þessar mundir. Tímasetning útboðs og skráningar Skipta
réðist einungis af þeim samningi sem gerður var við sölu félagsins árið 2005,
en ekki af þeim markaðsaðstæðum sem nú ríkja. Það er mat stjórnar Exista að
vegna markaðsaðstæðna og samþjappaðs eignarhalds sé veruleg hætta á því að
félagið og hluthafar þess muni ekki njóta þeirra kosta sem fylgir skráningu í
kauphöll.  Verði gengið að tilboðinu mun Exista því leggja til við stjórn
Skipta að óskað verði eftir afskráningu félagsins úr OMX ICE eins fljótt og
auðið er. 

Markmið með tilboði
Kauptilboð Exista felur ekki í sér neina stefnubreytingu í starfsemi Skipta.
Exista hyggst áfram styðja stjórnendur félagsins við að framfylgja þeirri
stefnu sem þeir hafa mótað og fylgt á undanförnum árum. Undir forystu þeirra
hafa Skipti og dótturfélög þess náð mjög góðum árangri innanlands og erlendis
og aukið verulega umfang rekstrarins og þjónustu við viðskiptavini. 
Þrátt fyrir nýafstaðið hlutafjárútboð er eignarhald Skipta fremur þröngt og
hluthafar tiltölulega fáir, sem er óæskilegt fyrir verðmyndum hlutabréfa á
markaði. Exista er hins vegar annað fjölmennasta hlutafélag landsins og
hlutabréf félagsins eru í flokki veltumeiri bréfa á OMX ICE.  Í gegnum eign
sína í Exista mun hluthöfum Skipta gefast kostur á að njóta með óbeinum hætti
þess ávinnings sem Skipti kunna að skapa í framtíðinni. 

Lýður Guðmundsson, stjórnarformaður Exista:
„Sem leiðandi hluthafi axlar Exista ábyrgð gagnvart Skiptum og starfsfólki
þess. Við núverandi markaðsaðstæður teljum við mikilvægt að tryggja stöðugleika
í eignarhaldi félagsins og styðja þannig frekar við vöxt þess og trausta
þjónustu við viðskiptavini. 

Þegar ríkið seldi hlut sinn um mitt ár 2005 var ófyrirséð hvernig
fjármálamarkaðir yrðu nú þegar Skipti fara á markað. Kaupendur félagsins hafa
staðið við gerða samninga að fullu, þrátt fyrir erfiðasta ástand á
hlutabréfamörkuðum í áratugi.
 
Útboð á hlutum í félaginu leiddi í ljós að hlutabréfamarkaðurinn er ekki
tilbúinn til þess að taka við nýju félagi í núverandi árferði. Því býðst Exista
til þess að kaupa hluti annarra hluthafa á útboðsverði og afskrá félagið í
kjölfarið. Samkvæmt tilboðinu er árleg meðalávöxtun lífeyrissjóða og annarra
fjárfesta sem tóku þátt í einkavæðingu félagsins árið 2005 um 20%. Það er von
okkar að síðar skapist grundvöllur til þess að skrá Skipti á hlutabréfamarkað á
ný.“ 

Frekari upplýsingar veitir:
Exista hf. 
Sigurður Nordal
framkvæmdastjóri samskiptasviðs
ir@exista.com                                        550 8620 / 860 8620


Um Exista
Exista hf. starfar á sviði fjármálaþjónustu, einkum vátrygginga og eignaleigu,
meðal annars undir merkjum VÍS, Lífís og Lýsingar. Exista er jafnframt
alþjóðlegur fjárfestir og meðal annars kjölfestueigandi í Sampo Group,
Kaupþingi banka, Bakkavör Group og Skiptum. 
Upplýsingar um Exista hf. er að finna á vefsíðu félagsins www.exista.is.
GlobeNewswire