Alþjóðlega matsfyrirtækið Standard & Poor's tilkynnti í dag að það hefði tekið lánshæfismat Glitnis til skoðunar með möguleika á lækkun. S&P staðfestir lánshæfismat langtíma- og skammtímaskuldbindinga. Lánshæfismat Glitnis er nú: langtímaskuldbindingar eru metnar A-, skammtímaskuldbindingar A-2. Glitnir er eini bankinn á Íslandi sem metinn er af S&P."Þessi afstaða S&P kemur í sjálfu sér ekki á óvart í ljósi þeirra aðstæðna sem nú ríkja á mörkuðum," segir Ingvar H. Ragnarsson, framkvæmdastjóri fjárstýringar Glitnis. "Glitnir er eina bankastofnunin á Íslandi sem er metinn af S&P en lánshæfismatsfyrirtæki hafa almennt verið að endurskoða afstöðu sína til fjölmargra banka í ljósi breyttra markaðsaðstæðna. S&P breytti horfum nokkurra af stærri fjárfestingabönkum heims úr stöðugum í neikvæðar fyrir um mánuði síðan. Við munum vinna með S&P og kynna bankann með það að markmiði að tryggja núverandi lánshæfismat hans, og munum áfram hafa skuldabréfafjárfesta ofarlega í huga." Tilkynning S&P er í meðfylgjandi viðhengi. Nánari upplýsingar veita: Ingvar H. Ragnarsson, framkvæmdastjóri fjárstýringar, s. 844 4665 og netfang: ingvar.ragnarsson@glitnir.is. Vala Pálsdóttir, forstöðumaður fjárfestatengsla, í síma 844 4989, eða netfang: vala.palsdottir@glitnir.is. Már Másson, forstöðumaður kynningarmála, í síma 844 4990, eða netfang: mar.masson@glitnir.is
S&P breytir horfum um lánshæfismat Glitnis
| Source: Glitnir banki hf.