Í kjölfar tilkynningar Kaupþings banka hf. 19. mars 2008 um að bankinn hefði ákveðið að innheimta ekki þær áskriftir sem fengust í hlutafjárútboði Skipta hf. og að fella niður þær áskriftir sem ekki hafa verið greiddar fyrir kl. 4 síðdegis 26. mars 2008, tilkynntu 70 áskrifendur Kaupþingi banka hf. þann 25. mars að þeir hyggist ekki greiða áskriftir sínar og eru þær því felldar niður. Hafa því alls 73 áskrifendur fallið frá áskrift sinni. Að teknu tilliti til þessa á Kaupþing banki hf. 1.798.957.044 hluti í Skiptum hf., eða sem nemur 24,41% af heildarhlutafé Skipta hf.