- 2007


Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum er stofnun í eigu sveitarfélaganna á
Suðurnesjum og bera þau ábyrgð á skuldbindingum þess. Eignarhaldið er
breytilegt og fer eftir íbúafjölda í sveitarfélögum á hverjum tíma. 
Hlutverk sambandsins er í meginatriðum að hafa umsjón með og annast ýmiskonar
verkefni sem sveitarfélögin á Suðurnesjum standa sameiginlega að. Starfsemi
sambandsins flokkast því undir að vera á vettvangi sveitarfélaga. 

Á árinu 2003 seldi sambandið skuldabréf í opnu skuldabréfaútboði fyrir 500
millj. kr. Lánið er verðtryggt, greiðist á tíu árum og ber 5% fasta vexti.
Láninu er ætlað að fjármagna framkvæmdir við Fjölbrautaskóla Suðurnesja sem
sveitarfélögin þar standa að. Samkvæmt samkomulagi þeirra við ríkissjóð mun
hann greiða hlutdeild í framkvæmdum og annast sambandið fjármögnun þeirra fyrir
hönd sveitarfélaganna. Sveitarfélögin 
bera hlutfallslega ábyrgð á greiðslu lánsins og sambandið sér um að innheimta
hjá hverju þeirrra hlutdeild í afborgun og vöxtum af láninu á hverjum gjalddaga
og standa skil á þeim til skuldareigenda. Í lok ársins 2007 námu eftirstöðvar
lánsins 359 millj. kr. og eftirstöðvar þess voru í fullum skilum. 

Tekjuafgangur sambandsins á árinu 2007 nam rúmum 12,7 milljónum kr. og eigið fé
í lok ársins 2007 nam 50,2 milljónum kr. samkvæmt ársreikningi. Starfsemi
sambandsins var í megninatriðum í samræmi við áætlanir og greiðslur
sveitarfélaganna til sambandsins vegna fjármögnunarverkefna þess voru í skilum. 

Guðjón Guðmundsson er framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum og
veitir frekari upplýsingar um starfsemi þess og stöðu. 

Reykjanesbæ, 28. mars 2008
Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum.

Attachments

arsreikningur sss 2007.pdf lykiltolur sss.pdf