Össur hf. selur sáraumbúðavörulínu félagsins


Ossur hf. (OMX: OSSR) hefur í dag selt sáraumbúðavörulínu félagsins til BSN medical GmbH, sem er leiðandi á sviði sáraumbúða.
 
Salan mun styrkja áherslur Össurar á  lykilstarfsemi félagsins.
 
Andvirði sölunnar nemur 11 milljónum Bandaríkjadala. Samkvæmt ákvæðum í samningi getur andvirði sölunnar hækkað um allt að 6 milljónir Bandaríkjadala að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Össur hefur átt í málaferlum vegna einkaleyfa fyrir þessa vörulínu og mun Össur reka málin áfram. Hluti af söluandvirðinu verður notaður til þess að koma á móti kostnaði vegna málaferlanna.
 
Bókfærðar tekjur af sölunni, um 5,5 milljónir Bandaríkjadala, verða færðar sem aðrar tekjur á fyrsta fjórðungi 2008.
 
 
 
Um Össur:
Össur hf. (OMX: OSSR) er alþjóðlegt fyrirtæki á sviði stoð-og stuðningstækja sem hjálpar fólki að lifa lífinu án takmarkana. Fyrirtækið leggur áherslu á að auka hreyfigetu fólks með nýsköpun í tækni á sviði spelkna- og stuðningsvara, gervilima og vörum til nota við blóðrásarmeðferðir. Össur hf. leggur mikla áherslu á fjárfestingu í rannsókn og vöruþróun sem viðheldur sterkri stöðu Össurar á markaðnum. Össur leggur metnað sinn í að veita viðskiptavinum og notendum góða þjónustu til þess að þeir nái sem bestum árangur. Höfuðstöðvar félagsins eru á Íslandi og helstu starfsstöðvar eru í Ameríku, Evrópu og Asíu, auk dreifiaðila víðsvegar um heim.  
 
Um BSN medical:
BSN medical er alþjóðlegt fyrirtæki sem er leiðandi á heilbrigðismarkaði og sérhæfir sig í spelkum og stuðningsvörum, sáraumbúðum og vörum til nota við blóðrásarmeðferðir.  BSN leggur áherslu þróun á framúrskarandi hágæðavörum fyrir notendur og þjónustuaðila. BSN medical var stofnað 2001 í kjölfar samstarfs  Beiersdorf og Smith & Nephew.  Frá árinu 2006 hefur BSN verið að sjálfstætt fyrirtæki á markaði fyrir sáraumbúðir, stuðningsvörur og vörur til nota við blóðrásarmeðferðir.  Félagið var keypt árið 2006 af Montagu Private Equity, leiðandi evrópsktu fjárfestingafyrirtæki  sem var stofnað 1968. BSN er með höfuðstöðvar í Þýskalandi en helstu starfsstöðvar  félagsins eru í Evrópu, Ameríku og Asíu auk þess að vera með samstarfs- og dreifisamninga á öðrum svæðum.
GlobeNewswire