- Icelandair Cargo hverfur frá samningi um fraktflugvélar


Dótturfyrirtæki Icelandair Group, Icelandair Cargo og Icelease, hafa fallið frá
samningaviðræðum við Avion Aircraft Trading um leigu og kaup á fjórum Airbus
A330-200 fraktflugvélum. Viljayfirlýsing um málið var gerð í maí á síðasta ári.
Flugvélarnar áttu að afhendast á árunum 2010 og 2011 samkvæmt
viljayfirlýsingunni. Skráð listaverð flugvélar af þessari gerð er um 130
milljónir bandaríkjadala. 

"Þessi ákvörðun okkar er tekin til að draga úr áhættu í rekstri Icelandair
Group með hliðsjón af þeirri óvissu í efnahagsmálum sem nú ríkir. Við teljum
óráðlegt á þessum tímapunkti að taka á okkur jafn stóra skuldbindingu og föllum
frá viljayfirlýsingunni í fullu samráði við samningsaðila okkar”, segir
Björgólfur Jóhansson, forstjóri Icelandair Group. 

"Langtímastefna Icelandair Cargo um vöxt utan heimamarkaðar og rekstur
hagkvæmustu flugvélategunda er óbreytt en verður framkvæmd síðar eða með öðrum
hætti", segir Pétur J. Eiríksson, framkvæmdastjóri Icelandair Cargo. 

Icelandair Cargo rekur nú fimm Boeing 757-200 fraktvélar. Félagið hefur vaxið
um 20% á ári undanfarin ár og stefnir á svipaðan vöxt næstu árin.  Flugfrakt er
vaxtargrein, sem reiknað er með að vaxi næstu 20 ár um 6% árlega. Vaxtaráform
byggjast á því að örva innri vöxt með auknu flugframboði inn á nýja markaði, og
samstarfi við önnur flugfélög. Auk þess að selja frakt í 22 áfangastaði
Icelandair þjónar félagið átta áfangastöðum með fraktþotum, sem eru Liege,
Brussel, Jönköping, Norrköping, Humberside, East Midlands, New York og Halifax. 

Nánari upplýsingar:
Pétur J. Eiríksson, framkvæmdastjóri Icelandair Cargo  Sími: 893-4925
Björgólfur Jóhannsson forstjóri Icelandair Group       Sími: 896-1455
Guðjón Arngrímsson, upplýsingastjóri Icelandair Group  Sími: 864-5849