Ársreikningur Garðabæjar fyrir árið 2007 er lagður fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn 17. apríl 2008. Samkvæmt sveitarstjórnarlögum skal fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í sveitarstjórn og verður hann aftur til umfjöllunar í bæjarstjórn Garðabæjar 15. maí nk. Ársreikningur Garðabæjar árið 2007 hefur að geyma ársreikning fyrir þær rekstrareiningar sem falla undir A-hluta starfsemi sveitarfélagsins og samantekinn ársreikning fyrir alla starfsemi þess, þ.e.a.s. A og B-hluta, sbr. 60. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 45/1998. Til A-hluta, þ.e. sveitarsjóðs, telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Hér er um að ræða Aðalsjóð, en auk hans Eignarsjóð og Þjónustumiðstöð Garðabæjar. Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu sveitarfélagsins. Rekstur B-hluta fyrirtækja er fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtæki sem falla undir B-hluta starfsemi sveitarfélagsins eru Samveitur Garðabæjar og Garðahús hf. Lykiltölur úr reikningnum og kennitölur: Sjá í viðhengi er fréttatilkynningin í heild sinni. Ársreikningur Garðabæjar fyrir árið 2007 er lagður fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn 17. apríl 2008. Niðurstaðan endurspeglar gott jafnvægi í rekstri bæjarsjóðs. Samkvæmt sjóðstreymi nemur veltufé frá rekstri 1.178 mkr, en áætlun gerði ráð fyrir 970 mkr. Mismunur er 208 mkr sem er 4,7% frávik m.v. heildarrekstrargjöld sem nema 4.406 mkr. Veltufé frá rekstri sem hlutfall af tekjum er 18,7% hjá A hluta bæjarsjóðs Garðabæjar en þegar litið er til samstæðureiknings er veltufé frá rekstri 21,2%. Heildarrekstrartekjur bæjarins nema 5.556 mkr og er það 8,2% hærri tekjur en áætlun gerði ráð fyrir. Heildarrekstrargjöld án fjármagnsliða og afskrifta eru 3.989 m.kr. sem eru 2,5% hærri útgjöld en áætlun gerði ráð fyrir. Rekstrarniðurstaðan nokkuð betri en áætlun gerðir ráð fyrir, eða 1.225 mkr í stað 730 mkr. Skýrist það að mestu af hærri skatttekjum og fjármagnsliðum en netto fjármagnskostnaður reyndist 204 mkr lægri en áætlun gerðir ráð fyrir, sem rekja má að mestu til góðrar ávöxtunar handbærs fjár. Í nánustu framtíð er ljóst að fjölgun bæjarbúa á næstu árum mun auka umfang rekstrar og stærð efnahagsreiknings. Má þar nefna til lok framkvæmda í Sjálandi og Akralandi auk nýrrar uppbyggingar í Urriðaholti.
Recommended Reading
-
Garðabær hefur lokið útboði í skuldabréfaflokknum GARD 11 1. Heildartilboð í GARD 11 1 voru samtals 920 m.kr. að nafnverði. Ákveðið var að taka tilboðum, samtals að nafnverði 820 m.kr. á...
Read More -
Garðabær heldur útboð á skuldabréfum í flokknum GARD 11 1, og mun útboð fara fram mánudaginn 15. desember 2025. Flokkurinn er verðtryggður með jöfnum hálfsárslegum greiðslum vaxta og...
Read More