2007


Ársreikningur Kópavogsbæjar fyrir árið 2007 var tekinn til fyrri umræðu í
Bæjarstjórn Kópavogs þann 22. apríl.  Helstu niðurstöður ársreiknings
Kópavogsbæjar eru eftirfarandi: 

Lykiltölur:
Sjá í meðfylgjandi fréttatilkynningu.


Helstu frávik rekstrar A og B hluta

Rekstrarniðurstaða samantekins ársreiknings A- og B- hluta varð 754 m.kr. betri
en samkvæmt endurskoðaðri fjárhagsáætlun. Stærstu frávikin sem urðu á rekstri
greinast þannig:  Hagnaður af sölu byggingarréttar varð 560 m.kr. hærri en
áætlun gerði ráð fyrir. Sömuleiðis urðu skatttekjur 521 m.kr. hærri en samkvæmt
áætlun. Hins vegar varð hækkun lífeyrisskuldbindingar 162 m.kr. meiri en áætlun
gerði ráð fyrir, afskriftir voru 59 m.kr. umfram áætlun og fjármagnsliðir fóru
90 m.kr. fram úr áætlun. Þá urðu ýmsir aðrir liðir 16 m.kr. óhagstæðari en
samkvæmt áætlun. 


Helstu frávik fjárfestinga A og B hluta

Heildarfjárfestingar A- og B hluta (brúttó) urðu 10.176 m.kr. á árinu 2007 eða
1.420 m.kr. meiri en áætlað hafði verið.  Þar munar mestu um að framkvæmdir við
Vatnsveitu og skóla- og íþróttamannvirki urðu meiri en samkvæmt áætlun. 


Efnahagur A og B hluta

Heildarskuldir samantekins ársreiknings A og B hluta a.t.t.t.
lífeyrisskuldbindingar hækkuðu milli ára úr 14.563 m.kr. í árslok 2006 í 18.926
m.kr. í árslok 2007 eða um 4.363 m.kr. Hækkunin skýrist einkum af því að
framlag rekstrar og tekjur af lóðaúthlutunum náðu ekki að standa undir öllum
fjárfestingum ársins, en þær hafa aldrei verið meiri í sögu bæjarins. 


Framtíðarhorfur

Frá árslokum 1994 til ársloka 2007 fjölgaði íbúum Kópavogs um 64% á meðan
landsmönnum fjölgaði um  17% Þannig voru Kópavogsbúar 17.431 í árslok 1994 en
28.561 í lok síðastliðins árs. Áætlanir gera ráð fyrir að íbúum muni fjölga
verulega áfram á næstu árum. 

Kópavogsbær hefur í meira en áratug staðið fyrir miklu framboði af
byggingarlóðum í bænum.  Það skýrir hraðan vöxt bæjarins, hátt framkvæmdastig
og auknar tekjur. Bærinn hefur á sama tíma staðið í ýmsum mikilvægum
framkvæmdum umfram það sem fylgir byggingu nýrra hverfa.  Þannig hefur
Kópavogsbær lagt verulegt fé til endurbyggingar gamalla gatna, endurnýjunar
lagnakerfis, nýs fráveitukerfis og í ýmis önnur mannvirki. Þar sem bærinn er í
örum vexti hefur fjárfesting í þjónustumannvirkjum haft forgang frá 1990 og
líklegt er að svo verði áfram. 

Samkvæmt fjárhagsáætlunum bæjarins fyrir árin 2008 - 2010 er gert ráð fyrir
lækkun heildarskulda á næstu árum og verulegri hækkun eigin fjár. Þá er búist
við að fjölgun íbúa muni skila bænum tekjuaukningu umfram verðlagsbreytingar.

Attachments

frettatilkynning vegna arsreiknings 2007-kopavogsbr.pdf arsreikningur kopavogsbjar 2007 - fyrri umral.pdf
GlobeNewswire