Afkoma Exista á fyrsta ársfjórðungi 2008


Fjármálaþjónustufyrirtækið Exista hf. birtir í dag árshlutauppgjör fyrir fyrstu
þrjá mánuði ársins 2008.	 

Helstu niðurstöður rekstrarreiknings:
•	Afkoma eftir skatta neikvæð um 43,8 milljónir evra (ISK 4,4 milljarðar)
•	Hagnaður af fjármálaþjónustu eftir skatta 67,2 milljónir evra (ISK 6,8
       milljarðar) 
•	Tap af fjárfestingum eftir skatta 111,0 milljónir evra (ISK 11,2 milljarðar)

Helstu niðurstöður efnahagsreiknings:
•	Heildareignir 7,4 milljarðar evra (ISK 893 milljarðar), lækkuðu um 8,1% í
       fjórðungnum 
•	Eigið fé 2,3 milljarðar evra (ISK 283 milljarðar), lækkaði um 1,5% í
       fjórðungnum 
•	Heildarskuldir lækkuðu um 10,9% í fjórðungnum
•	Reiðufé nam 485 milljónum evra (ISK 59 milljörðum) 31. mars og tryggt lausafé
       nægilegt til að mæta endurfjármögnun til desember 2009 
•	Eiginfjárhlutfall 35,2% (með víkjandi skuldabréfum)

Lýður Guðmundsson, stjórnarformaður:
„Við erum sátt við útkomu Exista úr ársfjórðungi sem reynst hefur fyrirtækjum í
fjármálaþjónustu sérlega erfiður. Þrátt fyrir neikvæða afkomu, þá hefur Exista
staðið vörð um sterkar fjárhagslegar undirstöður, öfluga lausafjárstöðu og
framúrskarandi eignir. Við höfum hagað starfsemi Exista, kostnaðaraðhaldi og
áhættustýringu með þeim hætti að tekist hefur að tryggja fjárhagsstyrk og
lausafé félagsins á tímum umróts á alþjóðamörkuðum. Samhliða höfum við tekið
mikilvæg skref við að skapa ný sóknarfæri, svo sem með kaupum á Skiptum. Ítök
Exista í fjármálaþjónustu á Norðurlöndum halda áfram að aukast og skapa
félaginu spennandi möguleika til framtíðar.“ 


Frekari upplýsingar um reikninga félagsins veitir:
Samskiptasvið Exista 
Sigurður Nordal
framkvæmdastjóri 
sími: 550 8620 (ir@exista.com)


Um Exista
Exista hf. starfar á sviði fjármálaþjónustu, einkum vátrygginga og eignaleigu,
meðal annars undir merkjum VÍS, Lífís og Lýsingar. Exista er jafnframt
alþjóðlegur fjárfestir og meðal annars kjölfestueigandi í Sampo Group,
Kaupþingi banka, Bakkavör Group, Storebrand og Skiptum. Markmið Exista er að
nýta fjárhagslegan styrk sinn til uppbyggingar á starfsemi sinni hér á landi og
erlendis. Upplýsingar um Exista hf. og uppgjörið er að finna á vefsíðu
félagsins, www.exista.com

Attachments

exista condensed consolidated interim financial statements q1 2008.pdf exista afkoma 1f 2008.pdf
GlobeNewswire