Reykjavík 14. maí 2008 Glitnir hefur í dag lokið samræmdum
uppsagnaraðgerðum á Íslandi sem fela í sér uppsögn 88 starfsmanna
bankans. Um er að ræða starfsmenn úr flestum deildum og sviðum
bankans. Með þessum uppsögnum verður starfsmannafjöldi Glitnis á
Íslandi svipaður og í upphafi árs 2007 eða um 1000.
Órói á alþjóðlegum fjármálamörkuðum hefur á stuttum tíma gjörbreytt
starfs- og rekstrarumhverfi fjármálafyrirtækja um allan heim. Íslensk
fjármálafyrirtæki hafa ekki farið varhluta af þessari þróun og hefur
dregið úr vexti þeirra á Íslandi sem og erlendis.
Áætlanir Glitnis á fyrri helmingi ársins 2007 gerðu ráð fyrir
áframhaldandi hröðum vexti og tók uppbygging á innri starfsemi
bankans mið af þeim áætlunum. Frá því í lok síðasta árs hefur
Glitnir brugðist við breyttum aðstæðum á fjármálamarkaði, meðal
annars með því að aðlaga starfsmannafjölda bankans að verkefnastöðu
og umsvifum á Íslandi og erlendis.
Erlend starfsemi endurskipulögð
Starfsemi Glitnis í Evrópu hefur frá ársbyrjun verið í endurskoðun
með það fyrir augum að skerpa áherslur og ná fram hagræðingu og
lækkun kostnaðar.
* Skrifstofu bankans í Danmörku var lokað í febrúar sl. og hluti
starfseminnar flutt til London og Reykjavíkur. Stöðugildum fækkað
um 15.
* Starfsemi í Noregi endurskipulögð með sameiningu fyrirtækja
bankans undir nafni Glitnis ásamt öðrum aðgerðum. Stöðugildum
fækkað um 60.
* Dregið úr fasteignalánastarfsemi í Evrópu og starfsemi bankans í
Lúxemborg endurskipulögð í byrjun apríl sl. Með því losar bankinn
um 100 milljarða í lausafé. Stöðugildum fækkað um 10.
* Starfsemi skrifstofu bankans í London endurskipulögð í lok apríl
og stöðugildum fækkað um 10.
Kostnaðaraðhald og hagræðingaraðgerðir á Íslandi
Glitnir hefur einnig leitað leiða til að hagræða í starfsemi sinni á
Íslandi. Almennt kostnaðaraðhald hefur ríkt í bankanum frá ársbyrjun,
nýráðningum hefur verið haldið í lágmarki og ekki hefur verið ráðið
störf sem hafa losnað.
Í apríl síðastliðnum var útibúi bankans í Smáralind lokað og það
sameinað útibúinu í Hamraborg í Kópavogi. Þá verða útibú Glitnis í
Skútuvogi og á Kirkjusandi sameinuð þar sem sérstök áhersla verður
lögð á þjónustu við smærri og meðalstór fyrirtæki.
Á síðasta ári voru ráðnir 319 starfsmenn til Glitnis á Íslandi, sem
er met í sögu bankans. Áætlanir bankans gerðu ráð fyrir áframhaldandi
hröðum vexti en nú er ljóst að þær forsendur hafa breyst. Í því ljósi
hefur bankinn ákveðið að grípa til uppsagna sem snerta 88 starfsmenn
bankans á Íslandi. Um er að ræða starfsmenn úr flestum stöðum,
deildum og sviðum bankans. Skipting milli kynja er jöfn, meðalaldur
þeirra sem um ræðir er um 40 ár, en um 2/3 þeirra starfsmanna sem um
ræðir hafa starfað hjá bankanum í skemur en 5 ár.
Með þessu hefur stöðugildum á öllum starfssvæðum Glitnis fækkað um
255 vegna starfsloka, uppsagna eða vegna þess að lausráðnir
starfsmenn hafa ekki verið fastráðnir.
Þeir starfsmenn sem sagt hefur verið upp munu flestir láta strax af
störfum. Bankinn hefur upplýst Vinnumálastofnun og Samtök
starfsmanna fjármálafyrirtækja um umræddar uppsagnir.
Með þessum uppsögnum verður starfsmannafjöldi Glitnis á Íslandi
svipaður og hann var í upphafi árs 2007 eða um 1000.
Lárus Welding, forstjóri Glitnis:
Þessi erfiða ákvörðun markar lok þeirra samræmdu uppsagnaraðgerða sem
bankinn hefur unnið að síðan í lok síðasta árs. Rekstrarumhverfi
fjármálafyrirtækja í heiminum hefur breyst á skömmum tíma og
mikilvægt er að fyrirtæki tryggi stöðu sína í breyttu umhverfi með
því að sýna sveigjanleika og getu til að lækka kostnað.
Það er sársaukafullt að grípa til ráðstafana af þessu tagi. Það er
eftirsjá af því góða fólki sem nú lætur af störfum vegna þessara
hagræðingaraðgerða og ég óska því alls hins besta í framtíðinni.
Starfsfólk Glitnis hefur alltaf verið eftirsótt á vinnumarkaðnum og
ég er ekki í vafa um að því fólki sem hér um ræðir muni bjóðast störf
við hæfi á nýjum vettvangi.
Á síðasta ári gerðu áætlanir okkar ráð fyrir miklum vexti á árinu
2008 og var ráðningum bankans háttað samkvæmt því. Forsendur eru nú
breyttar og er þessi ráðstöfun að mínu mati nauðsynleg til að
straumlínulaga starfsemina og styrkja samkeppnisstöðu bankans. Ég er
þess fullviss að með þessu muni bankinn verða betur í stakk búinn til
frekari vaxtar þegar alþjóðlegir fjármálamarkaði taka aftur að
glæðast.
Nánari upplýsingar:
Már Másson, forstöðumaður samskiptasviðs, beinn sími: 440-4990,
farsími: 844-4990, póstfang: mar.masson@glitnir.is
Vala Pálsdóttir, forstöðumaður fjárfestatengsla, beinn sími: 440
4989, farsími: 844 4990, póstfang: vala.palsdottir@glitnir.is
Glitnir aðlagar rekstur að breyttum markaðsaðstæðum - Samræmdum uppsagnaraðgerðum lokið
| Source: Glitnir banki hf.