Icelandair Group birtir uppgjör sitt fyrir fyrsta ársfjórðung ársins 2008 eftir lokun markaða þriðjudaginn 20. maí nk. Opinn kynningarfundur verður haldinn miðvikudaginn 21. maí á Hilton Reykjavik Nordica (Þingsal H). Kynningin hefst kl. 8:30. Björgólfur Jóhannsson forstjóri Icelandair Group mun kynna afkomu félagsins og svara spurningum. Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasíðu Icelandair Group: www.icelandairgroup.is.