Yfirtökutilboð Exista hf. (“Exista”) til hluthafa Skipta hf. (“Skipti”) sem tók gildi 31. mars rann út kl. 16:00 í gær, mánudaginn 26. maí, eins og fram kom í opinberu tilboðsyfirliti Exista frá 27. mars sl. Tilboðið var samþykkt af hluthöfum sem áttu alls 4.225.224.096 hluti í Skiptum eða sem nemur 56,32% hlutafjár í félaginu.. Fyrir tilboðið fór Exista með 43,68% hlutafjár í Skiptum í gegnum dótturfélög sín, Exista B.V., Vátryggingafélag Íslands hf. og Líftryggingafélag Íslands hf., eða 42,90% þegar tekið hefur verið tillit til hlutafjárhækkunar Skipta 31. mars sl. vegna frágangs á kaupum félagsins á Sensa ehf. og Anza hf. Exista hefur því tryggt sér 99,22% hlutafjár í Skiptum og mun fara með samsvarandi atkvæðisrétt í félaginu þegar uppgjör á yfirtökutilboðinu hefur farið fram. Hluthafar Skipta sem samþykktu tilboðið munu fá kaupverðið greitt eigi síðar en 2. júní 2008 í samræmi við skilmála tilboðsins. Exista mun óska eftir samþykki stjórnar Skipta við því að aðrir hluthafar Skipta sæti innlausn á hlutum sínum í félaginu eins skjótt og auðið er.
Recommended Reading
-
Í 38. viku 2026 keypti Ásar hf. 3.800.000 eigin hluti að kaupverði 41.482.500 kr. skv. sundurliðun hér á eftir: DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverð (kr.)Eigin hlutir eftir...
Read More -
Vísað er til tilkynningar Ása hf. frá 24. ágúst 2026 um framkvæmd endurkaupaáætlunar. Stjórn félagsins hefur ákveðið að fella niður gildandi endurkaupaáætlun sem tilkynnt var um þann 24. ágúst 2026...
Read More