Yfirtökutilboð Exista hf. (“Exista”) til hluthafa Skipta hf. (“Skipti”) sem tók gildi 31. mars rann út kl. 16:00 í gær, mánudaginn 26. maí, eins og fram kom í opinberu tilboðsyfirliti Exista frá 27. mars sl. Tilboðið var samþykkt af hluthöfum sem áttu alls 4.225.224.096 hluti í Skiptum eða sem nemur 56,32% hlutafjár í félaginu.. Fyrir tilboðið fór Exista með 43,68% hlutafjár í Skiptum í gegnum dótturfélög sín, Exista B.V., Vátryggingafélag Íslands hf. og Líftryggingafélag Íslands hf., eða 42,90% þegar tekið hefur verið tillit til hlutafjárhækkunar Skipta 31. mars sl. vegna frágangs á kaupum félagsins á Sensa ehf. og Anza hf. Exista hefur því tryggt sér 99,22% hlutafjár í Skiptum og mun fara með samsvarandi atkvæðisrétt í félaginu þegar uppgjör á yfirtökutilboðinu hefur farið fram. Hluthafar Skipta sem samþykktu tilboðið munu fá kaupverðið greitt eigi síðar en 2. júní 2008 í samræmi við skilmála tilboðsins. Exista mun óska eftir samþykki stjórnar Skipta við því að aðrir hluthafar Skipta sæti innlausn á hlutum sínum í félaginu eins skjótt og auðið er.
Recommended Reading
-
Ásar hf. hefur gert nýjan samning við Kviku banka hf. um viðskiptavakt á hlutabréfum útgefnum af félaginu sem skráð er á aðalmarkað Nasdaq Iceland. Tilgangurinn með viðskiptavaktinni er að stuðla að...
Read More -
Í 39. viku 2026 keypti Ásar hf. 6.850.000 eigin hluti að kaupverði 76.482.500 kr. skv. sundurliðun hér á eftir: DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverð (kr.)Eigin hlutir eftir...
Read More