Íbúðalánasjóður - Lokið er útboði á íbúðabréfum


Íbúðalánasjóður tilkynnir niðurstöðu í útboði íbúðabréfa, dags. 20. júní 2008.
Alls bárust tilboð að nafnvirði 20,8 milljarður króna. Ákveðið var að taka
tilboðum í íbúðabréf: 

• HFF150224 að nafnvirði 3,6 milljarðar króna, vegin áv.krafa án þóknunar er
4,80% 
• HFF150434 að nafnvirði 3,7 milljarðar króna, vegin áv.krafa án þóknunar er
4,44% 
• HFF150644 að nafnvirði 700 milljónir króna, vegin áv.krafa án þóknunar er
4,30% 

Vegin heildarávöxtunarkrafa tekinna tilboða án þóknunar er 4,59% og 4,61%, með
þóknun. Uppgjörsdagur viðskiptanna er 27. júní 2008. 

Nánari upplýsingar veita Herdís Einarsdóttir og Sigurður K. Sigurðsson (símar
569 6993 og 569 6996).