Eimskip CTG siglir í fyrsta sinn til Ameríku með eigin skip


Í fyrra hófust tilraunasiglingar frá Nýfundnalandi í Kanada til Rússlands og
Evrópu á vegum Eimskip CTG með frysta rækju og loðnu en eftirspurn eftir þessum
flutningum er sérstaklega mikil á tímabilinu frá maí til október. Þessum
árstíðarsveiflum mætir Eimskip með frystiskipum á þessum leiðum og getur þar af
leiðandi boðið útflytjendum í Nýfundnalandi og Nova Scotia þrjá mismunandi
flutningsmáta og mikla flutningatíðni. Eigin gámasiglingar á tveggja vikna
fresti, frystiskipaflutninga og vikulega frystiflutningsmiðlun. 

Skip Eimskip CTG, Polfoss og Langfoss hafa annað Nýfundnalandssiglingunum, en
Dalfoss er einnig á leiðinni vestur um haf til að anna eftirspurn. Nýju
frystiskipin sem félagið hefur fengið afhent á undanförnum árum þykja henta
afar vel í þetta verkefni, þar sem skipin eru hraðskreið og geta einnig borið
frystigáma. Fullestuð bera skipin um 3000 tonn hvert. 

Einnig hefur Eimskip CTG sótt inn á Austurströnd Bandaríkjanna til að sinna
flutningum á kjúklingi, svínakjöti og kalkúnakjöti til Klaipeda í Litháen.
Þaðan mun förmunum vera dreift með bílum og lestum til Hvíta-Rússlands, Úkraínu
og Kasakstan. 

Eimskip CTG rekur 11- 15 frystiskip á hverjum tíma og er floti félagsins sá
yngsti í heimi í frysti- og kæliflutningum á sjó. 

Að sögn Gylfa Sigfússonar, forstjóra Eimskips, þá eru verkefni á borð við þetta
í takt við nýlega boðaðar áherslur. „Innri vöxtur félagsins er með þessu
nokkur, þar sem ekki er ráðist í neinar umframfjárfestingar í verkefninu“,
segir Gylfi og bætir við; „Nýlegur frystiskipafloti Eimskip CTG annar þessum
siglingum fyllilega, og gerir okkur kleift að nýta þá fjárfestingu sem við
höfum lagt í enn betur en áður.“

Attachments

dalfoss.jpg
GlobeNewswire