Össur hf. - Uppgjör fyrir annan ársfjórðung 2008


Helstu niðurstöður fyrir annan ársfjórðung 2008
  • Sala var 92,9 milljónir Bandaríkjadala, jókst um 6% frá sama tímabili 2007.
  • EBITDA var 19 milljónir Bandaríkjadala, jókst um 10% frá sama tímabili 2007.
  • EBITDA hlutfall var 20,5%, samanborið við 19,7% á sama tíma í fyrra.
  • Hagnaður tímabilsins var 3,9 milljónir Bandaríkjadala, samanborið við 1,5 milljónir á sama tímabili 2007.
  • Hagnaður að viðbættum afskriftum á útistandandi hlut að teknu tilliti til kauprétta var 2,42 bandarísk sent, jókst um 25% frá sama tímabili 2007.
  • Hagnaður á hlut að teknu tilliti til kauprétta var 0,93 bandarísk sent, jókst um 138% frá sama tímabili í fyrra.
 
Helstu niðurstöður fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2008
  • Sala var 182,6 milljónir Bandaríkjadala, jókst um 8% frá sama tímabili 2007.
  • EBITDA var 42 milljónir Bandaríkjadala, jókst um 52% frá sama tímabili 2007.
  • EBITDA hlutfall var 23,0%, samanborið við 16,4% á sama tímabili 2007.
  • Hagnaður tímabilsins var 10,6 milljónir Bandaríkjadala, samanborið við 1,2 milljón dala tap á sama tímabili 2007.
  • Hagnaður að viðbættum afskriftum á útistandandi hlut að teknu tilliti til kauprétta var 5,39 bandarísk sent, jókst um 90% frá sama tímabili í fyrra.
  • Hagnaður á hlut að teknu tilliti til kauprétta var 2,51 bandarísk sent, samanborið við -0,32 á fyrri   hluta ársins 2007.
  
Jón Sigurðsson, forstjóri:
"Helstu áherslur ársins 2008 eru að auka arðsemi og að hagræða í vörulínum fyrirtækisins. Okkur hefur tekist að auka arðsemi félagsins talsvert á fyrstu sex mánuðum ársins þrátt fyrir slaka sölu á öðrum ársfjórðungi. Óvenju fáar vörur hafa verið markaðssettar á fyrstu sex mánuðum ársins, en von er á áhugaverðum nýjum vörum sem og endurbættum vörum á seinni hluta ársins."
 
 
Live comments form the CEO, see link here below:
 

Attachments

Ossur Q2 2008 Market Presentation Ossur hf Q2 2008 Financial Statement Ossur Q2 2008 afkomufrétt
GlobeNewswire