Afkoma Straums-Burðaráss fjárfestingabanka hf. á fyrri helmingi
ársins 2008
Hagnaður samstæðu eftir skatta 20,8 milljónir evra*
Helstu niðurstöður fyrri árshelmings 2008
* Hagnaður eftir skatta nam 20,8 milljónum evra. Hagnaður
fyrir skatta nam 4,3 milljónum.
* Rekstrartekjur námu 81,5 milljónum evra.
* Tekjur af þjónustu við viðskiptamenn, þ.e. hreinar
vaxtatekjur og hreinar þóknunartekjur, jukust um 12,0% miðað við
sama tímabil árið 2007 og námu 103,8 milljónum evra.
* Tap af fjárfestingum nam 25,1 milljón evra.
* Rekstrarkostnaður nam 62,0 milljónum evra.
* Kostnaðarhlutfall tímabilsins var 76,1%.
* Hagnaður á hlut nam 0,002 evrum.
* Arðsemi eigin fjár var 2,7%.
* Heildareignir í lok tímabilsins námu 6,2 milljörðum evra,
sem er 12,7% minna en í ársbyrjun.
* Eignir í stýringu námu 1,4 milljörðum evra í lok
tímabilsins.
* Eiginfjárhlutfall (CAD) var 25,4% í lok tímabilsins.
Eiginfjárþáttur A var 23,2%.
* Lausafjárstaða bankans er sterk og er bankinn fjármagnaður
í meira en 365 daga.
Helstu niðurstöður annars ársfjórðungs 2008
* Tap eftir skatta nam 1,4 milljónum evra. Tap fyrir skatta
nam 20,2 milljónum.
* Rekstrartekjur námu 15,3 milljónum.
* Tekjur af þjónustu við viðskiptamenn námu 49,8 milljónum;
þar af voru hreinar vaxtatekjur 23,9 milljónir og hreinar
þóknunartekjur 25,9 milljónir.
* Tap af fjárfestingum nam 36,0 milljónum.
* Rekstrarkostnaður hélt áfram að lækka og nam 26,9
milljónum.
* Tekjuskattur var jákvæður um 18,7 milljónir; þar af nemur
einskiptisleiðrétting 10,6 milljónum.
* Gengi fyrir hagnað/tap er meðalgengi ISK/EUR á fyrri hluta ársins:
109,14. Gengi fyrir efnahagsreikning er ISK/EUR í lok tímabilsins:
124,30
William Fall, forstjóri Straums"Okkur hefur tekist að stýra bankanum í gegnum erfiða tíma með því að
koma okkur upp stöðugum tekjustofnum þrátt fyrir óróa á mörkuðum,
standa vörð um fjárhagslegan styrk bankans, verja lausafjárstöðuna,
draga úr áhættu og skera niður kostnað. Á sama tíma höfum við haldið
áfram að efla starfsemina og leita nýrra tækifæra. Tap af tilteknum
fjárfestingum á öðrum ársfjórðungi er áminning um hve þýðingarmikið
var auka breiddina í starfsemi bankans eins og gert hefur verið. Og
það getur ekki yfirskyggt þann árangur sem við höfum náð í þeim
efnum, eins og birtist í því að tekjur af þjónustu við viðskiptamenn
á fyrri helmingi ársins jukust um 12% á milli ára."
Milljónir evra H1 2008 H1 2007 Q2 2008 Q1 2008 Q4 2007
Tekjur af þjónustu við 103,8 92,7 49,8 53,9 59,8
viðskiptamenn*
Rekstrartekjur 81,5 240,7 15,3 66,2 56,5
Rekstrarkostnaður (62,0) (42,3) (26,9) (35,1) (46,7)
Hagnaður fyrir skatta 4,3 191,0 (20,2) 24,4 1,4
Hagnaður 20,8 163,4 (1,4) 22,3 (0,6)
Kostnaðarhlutfall (%) 76,1 17,6
Hagnaður á hlut (evrur) 0,002 0,017
Arðsemi eigin fjár á 2,7 23,8
ársgrundvelli (%)
Eiginfjárhlutfall (CAD) (%) 25,4 28,4
Nánari upplýsingar veita:
Stephen Jack, fjármálastjóri
stephen.jack@straumur.net
+44 7885 997570
Georg Andersen
Forstöðumaður Samskipta- og markaðssviðs
georg.andersen@straumur.net
+354 858 6707
Uppgjörskynning í Reykjavík
Kynningarfundur verður haldinn fyrir hluthafa og markaðsaðila
miðvikudaginn 30. júlí 2008 á Hilton Reykjavík Nordica að
Suðurlandsbraut 2. Forstjóri og fjármálastjóri Straums
fjárfestingabanka kynna afkomu bankans og svara spurningum. Kynningin
verður á ensku. Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinni
útsendingu á vef bankans, www.straumur.com/webcast. Eftir fundinn
verður hægt að nálgast kynningarefni á vef Straums, www.straumur.com,
og á vef OMX Nordic Exchange á Íslandi, www.omxnordicexchange.is.
Fundurinn hefst klukkan 9.30 árdegis en boðið verður upp á léttar
veitingar frá klukkan 9:00.
Dagskrá:
9:00 Boðið upp á léttan hádegisverð
9:30 William Fall forstjóri og Stephen Jack fjármálastjóri kynna
afkomu bankans og svara spurningum
10:30 Fundarlok
Fundarstjóri: Georg Andersen, forstöðumaður Samskipta- og
markaðssviðs.
Afkoma fyrri árshelmings 2008
| Source: Straumur-Burðarás Fjárfestingabanki hf.