Fjármálaeftirlitið hefur ákveðið að stöðva tímabundið viðskipti með alla fjármálagerninga sem gefnir eru út af Glitni banka hf., sem teknir hafa verið til viðskipta á skipulegum verðbréfamarkaði. Ákvörðun þessi er tekin til að vernda jafnræði fjárfesta, á meðan beðið er eftir tilkynningu frá félaginu.