VBS fjáfestingarbanki hf. boðar til hluthafafundar í húsakynnum bankans að
Borgartúni 26 (6.hæð) þriðjudaginn 4. nóvember, kl: 17:00
Dagskrá:
1. Aðstæður á fjármálamarkaði, stefna og áherslur VBS.
2. Breyting á samþykktum:
- Að heimilt verði að gefa út skuldabréf með breytirétti í hlutafé allt að
fjárhæð krónur 3.000.000.000.-
- Að stjórn hafi umboð til að ákvarða verð og kjör skuldabréfa ásamt
gildistíma breytiréttar og gengi.
3. Að gildandi heimild til útgáfu nýrra hluta að fjárhæð allt að krónur
150.000.000.- falli niður.
4. Að heimild verði veitt til útgáfu nýrra hluta allt að krónur 300.000.000,-
án forkaupsréttar.
- Að stjórn hafi umboð til að ákvarða verð, kjör bréfanna, gengi og hvort
greitt er með reiðufé eða í öðru formi.
5. Kosning stjórnar og varastjórnar.
6. Önnur mál, löglega upp borin.
Framboðsfrestur til stjórnar og varastjórnar rennur út miðvikudaginn 29.
október 2008 kl. 16:00. Framboðum skal skilað á skrifstofu félagsins,
Borgartúni 26 (6.hæð), 105 Reykjavík.
Athygli er vakin á því að samkvæmt lögum og reglum um fjármálafyrirtæki skal í
tilkynningu um framboð koma fram: nafn frambjóðanda, kennitala, heimilisfang,
upplýsingar um aðalstarf, önnur stjórnarstörf, menntun, reynslu og
hlutafjáreign í félaginu. Enn fremur skal upplýsa um hagsmunatengsl við helstu
viðskiptaaðila og samkeppnisaðila félagsins, sem og hluthafa sem eiga meira en
10% hlut í félaginu.
Fundargögn og atkvæðaseðlar verða afhentir við innganginn frá klukkan 16:30 á
fundardag.
Stjórn VBS fjárfestingarbanka
- Hluthafafundur VBS fjárfestingarbanka hf. þann 4. nóvember 2008
| Source: VBS Fjárfestingarbanki hf.