Héraðsdómur Reykjavíkur veitir Glitni banka hf. greiðslustöðvun


Reykjavík 24.  nóvember 2008:  Héraðsdómur Reykjavíkur  veitti Glitni
banka  hf.,("Glitni")  heimild  til  greiðslustöðvunar,  í  dag   24.
nóvember 2008. Að mati skilanefndar bankans var nauðsynlegt að  stíga
þetta skref til að tryggja jafnræði kröfuhafa, í samræmi við  íslensk
lög og tilskipanir ESB. Greiðslustöðvunin veitir bankanum nauðsynlega
vernd gegn lögsóknum. Á meðan  á greiðslustöðvun stendur mun  bankinn
halda starfsleyfi  sínu  að  því  marki sem  nauðsynlegt  er  til  að
viðhalda verðmæti eigna bankans.

Greiðslustöðvunin mun einnig  veita Glitni svigrúm til  áframhaldandi
viðræðna við kröfuhafa, með það að markmiði að hámarka verðmæti eigna
fyrir alla  hlutaðeigandi.  Eins  og komið  hefur  fram  hefur  verið
stofnuð óformleg nefnd kröfuhafa.  Með greiðslustöðvuninni er  stefnt
að  því  að   gera  áframhaldandi   samstarf  við   kröfuhafanefndina
skilvirkara. Ráðgert er að halda annan fund með nefndinni í desember.

Steinunn Guðbjartsdóttir,  hæstaréttarlögmaður,  hefur  verið  ráðinn
aðstoðarmaður  í  greiðslustöðvun. Hún  mun  starfa  með   skilanefnd
bankans, en hún  mun, lögum  samkvæmt, fara  áfram með  valdheimildir
stjórnar bankans.  Markmið hennar eru  þau sömu  og skilanefndar,  að
varðveita eignir og hámarka greiðslu til lánadrottna.
Greiðslustöðvunin er  veitt  til kl. 13:30  föstudaginn  13.  febrúar
2009. Aðstoðarmanni bankans í greiðslustöðvun  er skylt að boða  fund
með kröfuhöfum, sem haldinn skal eigi síðar en þremur dögum fyrir lok
þess tíma.

Greiðslustöðvunin getur að hámarki varað í 24 mánuði.

Greiðslustöðvunin nær ekki  til Nýja Glitnis banka  hf., en hann  tók
við starfsemi Glitnis á Íslandi, 15. október 2008.

Nánari upplýsingar veitir:
Páll Eiríksson,  lögmaður  Skilanefndar Glitnis  banka  hf.,  netfang
pall.eiriksson@glitnirbank.com, sími 440-2710

Attachments

241108 Glitni banka hf. veitt greislustodvun.docx