- Millibankamarkaður með gjaldeyri


Undanfarnar vikur hefur verið stuðst við bráðabirgðaskipan gjaldeyrisviðskipta
milli fjármálafyrirtækja á svonefndum tilboðsmarkaði Seðlabanka Íslands.
Seðlabankinn hefur nánast verið eini seljandi gjaldeyris á þeim markaði. Gengið
hefur mótast af kauptilboðum annarra og ákvörðun Seðlabankans hverju sinni. Ný
skipan verður tekin upp á morgun. Áhersla verður lögð á að skapa eins virkan
markað og eðlilega verðmyndun og kostur er. Til þess þarf góða umgjörð og
gagnsæ viðskipti. 

Seðlabankinn hefur sett reglur um gjaldeyrismarkað að höfðu samráði við
fjármálafyrirtæki. Reglurnar taka gildi á morgun, fimmtudaginn 4. desember
2008. Í þeim er gert ráð fyrir að fjármálafyrirtæki gerist viðskiptavakar með
gjaldeyri. Skilyrði um fjárhæðir og tíðni tilboða eru vægari en þau sem
viðskiptavakar þurftu áður að uppfylla á millibankamarkaði. Er það bæði vegna
þess að burðir þeirra til umfangsmikilla viðskipta eru minni nú og einnig er
talið æskilegt að fleiri fjármálafyrirtæki verði viðskiptavakar en bankarnir
þrír sem sinntu því hlutverki til skamms tíma. Í fyrstu verða viðskiptavakarnir
þrír, þ.e. NBI, Nýi Glitnir og Nýja Kaupþing, en þess er vænst að þeim fjölgi. 

Gengi krónunnar verður að ráðast af framboði og eftirspurn á markaði en ekki
með sölu á gjaldeyri úr forða Seðlabankans. Hin nýja skipan stuðlar að
eðlilegri þróun. Þátttaka Seðlabankans á gjaldeyrismarkaði er ekki útilokuð á
næstunni. Komi til hennar mun hún miða að því að draga úr óhóflegum sveiflum en
ekki að styðja eitthvert ákveðið gengi. Framfarir á skipan gjaldeyrismála
byggjast á því að gjaldeyrir sem útflutningsgreinar afla skili sér til
fjármálafyrirtækja og þau eigi viðskipti sín á milli á skipulögðum markaði. 

Eins og fram kom í stefnuyfirlýsingu bankastjórnar Seðlabankans 28. nóvember
sl. er raungengi krónunnar nú mjög lágt. Snarpur viðsnúningur á viðskiptum við
útlönd, aðhaldssöm peningastefna og reglurnar sem gildi tóku síðastliðinn
föstudag eftir að Alþingi hafði breytt lögum um gjaldeyrismál er allt til þess
fallið að styðja við gengi krónunnar.