Seðlabanki Íslands hefur frestað veðkalli á hendur Sparisjóðabanka Íslands hf. sem taka átti gildi hinn 10. desember, til 28. janúar 2009. Unnið er að fjárhagslegri endurskipulagningu Sparisjóðabankans með stærstu kröfuhöfum hans og er stefnt að því að niðurstaða hennar liggi fyrir innan framangreinds frests.
Seðlabanki Íslands veitir Sparisjóðabanka Íslands frest til 28. janúar.
| Source: Sparisjóðabanki Íslands hf.