Bæjarstjórn Kópavogs hefur samþykkt fjárhagsætlun fyrir bæjarsjóð árið 2009 með
200 milljóna króna rekstarafgangi. Allir bæjarfulltrúar í bæjarstjórn Kópavogs
undirrituðu eftirfarandi bókun á bæjarstjórnarfundi nú undir kvöld.
„Helstu atriði varðandi fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar fyrir árið 2009:
1. Vinna við fjárhagsáætlun var unnin af fulltrúum allra flokka í bæjarstjórn
Kópavogs og standa þeir saman að henni.
2. Ítrasta sparnaði og aðhaldi var beitt til að ná rekstri bæjarsjóðs
hallalausum.
3. Grunnþjónusta á vegum bæjarfélagsins verður ekki skert.
4. Miðað við gefnar forsendur um tekjur verður rekstrarafgangur bæjarsjóðs um
200 milljónir króna eða ríflega 1%.
5. Laun nefndarfólks verða lækkuð um 10% ásamt því að fundum nefnda verður
fækkað.
6. Laun yfirstjórnar Kópavogsbæjar verður lækkuð í samræmi við úrskurð
kjararáðs varðandi þingfararkaup og laun æðstu starfsmanna ríkisins.
7. Grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar er hækkuð um 17,1% á milli ára og upphæð til
fjárhagsaðstoðar hækkar úr 110 milljónir króna í 187 milljónir króna.
8. Húsaleigubætur verða hækkaðar úr 100 milljónir króna 2008 í 167 milljónir
króna.
9. Útsvar fyrir árið 2009 verður 13,28%.
10. Áætlað er að framkvæma fyrir ríflega 1.500 milljónir króna á árinu 2009.
Helstu málaflokkar eru eftirfarandi:
a.Grunn- og leikskóli 490 milljónir króna
b.Íþróttamannvirki 471 milljónir króna
c.Þjónustumiðstöð og hjúkrunarrými fyrir aldraða 350 milljónir króna
d.Stígar, gróður, opin svæði o.fl. 150 milljónir króna
11. Stærstu rekstrarliðir í fjárhagsáætluninni eru (sem hlutfall af
skatttekjum):
a.Fræðslumál 61%
b.Æskulýðs- og íþróttamál 11%
c.Félagsþjónusta 7%
d.Umferðar og samgöngumál 5%
12. Fjárhagsáætlun verður endurskoðuð eftir þrjá mánuði.“
Í fjárhagsáætluninni er enn fremur gert ráð fyrir sérstöku 100 milljóna króna
framlagi til atvinnuskapandi verkefna vegna samdráttar á vinnumarkaði.
Recommended Reading
-
Fjárhagsáætlun fyrir árið 2027 var samþykkt í bæjarstjórn Kópavogs að lokinni seinni umræðu, þriðjudaginn 24. nóvember. Einnig var samþykkt þriggja ára áætlun fyrir tímabilið 2028-2030. Óverulegar...
Read More -
Fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar fyrir árið 2027 var lögð fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn í dag, þriðjudaginn 10. nóvember. Áætlunin byggir á ábyrgri fjármálastjórn og áframhaldandi uppbyggingu, með...
Read More