Birting 12 mánaða uppgjörs þann 29. janúar 2009


Þann 29. janúar eftir lokun markaða mun Hf. Eimskipafélag Íslands birta uppgjör
ársins 2008 sem lauk þann 31. október 2008. Athugið að þetta er breyting á áður 
auglýstum birtingartíma. 

Kynningarfundur fyrir hluthafa og markaðsaðila verður haldinn föstudaginn, 30.
janúar í húsakynnum Eimskips, Sundakletti Korngörðum 2. Kynning á uppgjörinu
hefst stundvíslega klukkan 08:30 og boðið verður upp á morgunverð. 

Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips og Hilmar P. Valgarðsson fjármálastjóri
Eimskips kynna afkomu félagsins og svara spurningum. 

Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á
heimasíðu félagsins, eimskip.is.