Stjórn SPRON stefnir að sameiningu dótturfélaga við móðurfélagið


Stjórn SPRON hefur ákveðið að stefna skuli að sameiningu dótturfélaga þess,
Frjálsa Fjárfestingabankans og SPRON verðbréfa við móðurfélagið. Sameiningarnar
eru liður í þeim skipulagsbreytingum sem unnið hefur verið að, að undanförnu en
markmið þeirra er að SPRON verði betur í stakk búið til þess að mæta breyttu
rekstrarumhverfi og ná fram þeirri hagræðingu sem nauðsynleg er við núverandi
aðstæður. Unnið verður að sameiningu félaganna á næstu vikum og verða frekari
upplýsingar veittar um leið og hægt er. 

Netbankinn verður áfram starfandi í óbreyttri mynd sem sjálfstætt dótturfélag. 

Frekari upplýsingar veitir: 
Guðmundur Hauksson forstjóri sími 550 1200
Valgeir M. Baldursson framkvæmdastjóri fjármálasviðs sími 550 1200