Lokað fyrir aðild Straums-Burðaráss Fjárfestingabanka að viðskiptakerfi Kauphallarinnar


NASDAQ OMX Iceland hf. (Kauphöllin) hefur móttekið tilkynningu frá
Straumi-Burðaráss  Fjárfestingabanka hf. (Straumur) þar sem fram kemur að
fjárhagsstaða félagsins hafi versnað svo mjög að óvíst sé að bankinn geti sinnt
skyldum sínum í samræmi við ákvæði aðildarreglna NOREX kauphallanna. Í samræmi
við tilkynningu félagsins hefur Kauphöllin tekið ákvörðun um að loka fyrir
aðgang Straums að viðskiptakerfi Kauphallarinnar.