Ársreikningur Landsvirkjunar var í dag, 20. mars 2009, samþykktur á fundi stjórnar. Ársreikningur Landsvirkjunar er gerður samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastöðlum (IFRS) eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu og er hann í Bandaríkjadölum sem er starfrækslugjaldmiðill Landsvirkjunar frá og með ársbyrjun 2008. Samanburðartölur fyrir árið 2007 hafa verið umreiknaðar á lokagengi Bandaríkjadals gagnvart íslenskri krónu í árslok 2007. Á árinu 2008 var tap af rekstri samstæðu Landsvirkjunar 344,5 milljónir Bandaríkjadala en rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði og skatta (EBIT) var 246 milljónir Bandaríkjadala. Handbært fé frá rekstri nam 184,4 milljónum Bandaríkjadala. Í árslok námu heildareignir samstæðunnar 4.619,2 milljónum Bandaríkjadala og eigið fé nam 1.376,8 milljónum Bandaríkjadala. Eiginfjárhlutfall er 29,8% í árslok 2008. Rekstrartekjur aukast um 83 milljónir Bandaríkjadala sem er að verulegu leyti vegna aukinnar orkusölu með tilkomu Kárahnjúkavirkjunar. Rekstrarkostnaður án afskrifta nam 100,5 milljónum Bandaríkjadala á árinu en var 105,8 milljónir Bandaríkjadala árið áður. Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur námu 660,6 milljónum Bandaríkjadala sem skýrist aðallega af lækkun á gangvirði innbyggðra afleiða í orkusölusamningum sem tengdir eru álverði auk gengistaps. Gengistapið og gangvirðisbreytingar eru að mestu leyti óinnleyst og verður að hafa það í huga við mat á afkomu fyrirtækisins. Meðalnafnvextir langtímalána voru um 4,51% á árinu 2008 en þeir voru um 4,69% árið áður. Gengisþróun og gangvirðisbreytingar á innbyggðum afleiðum munu sem áður ráða miklu um afkomu Landsvirkjunar í ár. Fyrirtækið hefur aðgang að lausafé og lánum sem ásamt fé frá rekstri mun tryggja að fyrirtækið getur mætt núverandi skuldbindingum sínum á þessu og næsta ári. Landsvirkjun mun ekki ráðast í nýjar framkvæmdir nema að félaginu takist að afla nýrra langtímalána. Nánari upplýsingar veitir Stefán Pétursson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, í síma 515 9000. Ársreikningur Landsvirkjunar verður lagður fyrir aðalfund fyrirtækisins 3. apríl nk.
Recommended Reading
-
Solid operations and increased revenues from electricity sales Landsvirkjun’s profit from core operations in the third quarter amounted to USD 56 million, and cash from operations USD 46 million.The...
Read More