- MP Banki og Skilanefnd SPRON ná samkomulagi um kaup MP á Netbankanum og útibúaneti SPRON


MP Banki og Skilanefnd SPRON hafa náð samkomulagi um kaup MP Banka á
Netbankanum og útibúaneti SPRON. MP Banki hyggst reka áfram undir nafni SPRON
fyrri höfuðstöðvar SPRON við Skólavörðustíg og útibú á Seltjarnarnesi og í
Borgartúni. Starfsemi Netbankans verður haldið áfram í óbreyttri mynd. MP Banki
hefur skuldbundið sig til að bjóða að lágmarki 45 starfsmönnum SPRON og
Netbankans starf. Verðmæti tilboðsins nemur tæplega 800 milljónum króna. Innlán
og efnahagur SPRON og Netbankans hafa þegar flust yfir til ríkisbanka, en
viðskiptavinir geta nú flutt sig til baka frá og með næsta mánudegi. Samhliða
er gerður samningur um að þjónusta við lántakendur hjá SPRON og NB.is fari fram
í þeim útibúum sem munu halda áfram rekstri. 

Samkomulagið er gert með fyrirvara um samþykki Fjármálaeftirlitsins og
Samkeppnisstofnunar. Jafnframt er fyrirvari um að náist að endursemja við 
leigusala húsnæðis viðkomandi útibúa.

MP Banki hf. hefur viðskiptabankaleyfi í eigin nafni og felst í því ríkisábyrgð
á innistæðum viðskiptavina skv. yfirlýsingu ríkisstjórnar Íslands. MP Banki
hefur ákveðið að hefja almenna viðskiptabankastarfsemi til að veita öflugan
valkost við ríkisbankakerfið. Yfirtaka á Netbankanum og útibúaneti SPRON er
mikilvægur áfangi í þá átt að sögn forsvarsmanna MP Banka.

MP Banki býður alla viðskiptavini SPRON og Netbankans velkomna í viðskipti.

Nánari upplýsingar veitir Styrmir Þór Bragason forstjóri MP Banka í síma:
8583240