- Tekjur aukast um 19% frá fyrra ári • Salan jókst um 6,3 milljarða króna á milli ára eða um 19%. Sala nam 39,0 milljörðum króna samanborið við 32,7 milljarða árið áður. • Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) nam 9,0 milljörðum króna samanborið við 9,5 milljarða árið áður. EBITDA hlutfallið var 23%. • Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta nam 10,1 milljarði króna samanborið við 9,0 milljarða árið áður. Eftir vexti og skatta nam handbært fé frá rekstri 8,4 milljörðum króna. • Tap Skipta á árinu nam 6,4 milljörðum króna sem skýrist einkum af gengisþróun íslensku krónunnar á tímabilinu og virðisrýrnun óefnislegra eigna. • Fjármagnsgjöld voru 9,5 milljarðar króna en þar af nam gengistap 3,2 milljörðum króna. • 32% af tekjum samstæðunnar koma af erlendri starfsemi félagsins. • Vaxtaberandi skuldir að frádregnum innistæðum (nettó vaxtaberandi skuldir) námu 51,1 milljarði um áramót en voru 50,0 milljarðar árið áður. • Eiginfjárhlutfall Skipta hf. er 28%. Helstu atburðir á árinu • Miklar breytingar urðu á starfsumhverfi félagsins á síðari hluta ársins. Efnahagsþrengingar settu mark sitt á starfsemina. Gripið var til margháttaðra aðgerða í rekstrinum til að tryggja afkomu félagsins en búist er við minnkandi eftirspurn á stærstu mörkuðum félagsins á komandi misserum. • Síminn hélt áfram uppbyggingu á langdrægu GSM kerfi og hóf uppbyggingu á langdrægu 3G kerfi sem mun gefa notendum kost á öflugu háhraðasambandi um allt land og á miðunum í kringum Ísland. Þá tók Síminn þátt í útboði Fjarskiptasjóðs um uppbyggingu háhraðanets um allt land og hefur samningur milli aðila nú verið undirritaður. Með samningum er öllum landsmönnum tryggt háhraðanet fyrir árslok 2010. Um er að ræða tæplega 1800 heimili og hafa þau fyrstu þegar verið tengd. • Erlend starfsemi Skipta gekk ágætlega á árinu. Upplýsingatæknifyrirtækið Sirius IT skilar mjög góðri afkomu og treysti enn verkefnastöðu sína. Fjarskiptafélög Skipta í Danmörku voru sameinuð á árinu undir heitinu Síminn Danmark. • Hinn 19. mars 2008 tilkynnti Exista um valfrjálst tilboð í allt hlutafé Skipta hf. Tilboðið hljóðaði upp á 6,64 krónur á hlut og var greitt með nýjum hlutum í Exista. Tilboðstímabil stóð frá 27. mars til 26. maí og hafði Exista eignast 99,22% hlutafjár við lok tilboðstímabils. Í kjölfar þess og afskráningar Skipta voru útistandandi hlutir innkallaðir og er Skipti nú 100% í eigu Exista. Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Skipta hf. “Að baki er viðburðaríkt ár hjá Skiptum líkt og öðrum íslenskum fyrirtækjum. Afkoman af reglulegri starfsemi félagsins á árinu er ágæt miðað við aðstæður. Dótturfélög samstæðunnar hafa unnið að því að aðlaga sig að því breytta rekstrarumhverfi sem atburðir haustsins báru með sér og það er ljóst að framundan eru krefjandi tímar í rekstrinum. Gengisþróun íslensku krónunnar var verulega óhagstæð á árinu og skýrir að miklu leyti tap félagsins, þrátt fyrir gengisvarnir. Góður tekjuvöxtur var í starfsemi Skipta sem kemur að verulegu leyti frá erlendri starfsemi félagsins. Fjárhagsstaðan um áramót er góð, sem stafar annars vegar af sterku fjárstreymi úr rekstrinum og hins vegar af sölu eigna á síðari hluta ársins. Félagið er því í ágætri stöðu til að takast á við þá tíma sem framundan eru.“ Niðurstaða í rekstri á árinu 2008 Reikningsskilaaðferðir Samstæðuársreikningur Skipta hf. er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS) eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu. Samstæðuársreikningurinn hefur að geyma ársreikning Skipta hf. og dótturfélaga þess. Stjórn og forstjóri Skipta hf. hefur staðfest ársreikning samstæðu félagsins fyrir árið 2008. Rekstur Salan á árinu 2008 nam 39.013 m.kr. samanborið við 32.719 m.kr. árið áður, sem er 19% aukning. Þessi aukning skýrist einkum af auknum tekjum af erlendri starfsemi. Rekstrarhagnaður samstæðunnar fyrir afskriftir (EBITDA) var 8.966 m.kr. miðað við 9.493 m.kr. árið áður. EBITDA hlutfallið er nú 23% samanborið við 28% árið áður. Skipti hafa á undanförnum misserum keypt fyrirtæki í upplýsingatæknigeiranum en sá markaður skilar að jafnaði lægra EBITDA hlutfalli en fyrirtæki í fjarskiptageiranum. Á það ber hins vegar að líta að fjárfestingar eru að jafnaði minni í upplýsingatæknigeiranum. Þá eiga fjarskiptafélög Skipta erlendis ekki fjarskiptanetin sem þau reka þjónustu sína á og eru því með lægri EBITDA hlutfall en þau fjarskiptafélög sem eiga og reka sín eigin fjarskiptanet. Afskriftir félagsins námu 6.354 m.kr. á árinu samanborið við 4.202 m.kr. árið áður. Munurinn skýrist einkum af virðisrýrnun óefnislegra eigna. Tap samstæðunnar eftir skatta nam 6.424 m.kr. samanborið við 3.082 m.kr. hagnað á árinu 2007. Tapið nú skýrist einkum af gengisþróun íslensku krónunnar á árinu og virðisrýrnun óefnislegra eigna. Sjóðstreymi Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta var 10.102 m.kr. á árinu en var 9.014 m.kr. á fyrra ári. Fjárfestingar samstæðunnar í varanlegum rekstrarfjármunum (CAPEX) námu 4.151 m.kr. á árinu en námu 3.490 m.kr. fyrir sama tímabil 2007. Efnahagur Heildareignir samstæðunnar námu 128.657 m.kr. 31. des 2008 og jukust eignir um 32 % á árinu eða um 31,0 ma.kr. Vaxtaberandi skuldir að frádregnum innistæðum (nettó vaxtaberandi skuldir) námu 51,1 miljörðum um áramót en voru 50,0 milljarðar árið áður. Skipti var með gengisvarnir sem vörðu félagið að hluta fyrir gengislækkun íslensku krónunnar á árinu auk þess sem félagið seldi eignir á síðari hluta ársins. Hlutfall nettó vaxtaberandi skulda/EBITDA var 5,7 um áramót en var 5,3 árið áður. Eigið fé félagsins nam 36.547 m.kr. í lok árs 2008 og eiginfjárhlutfall var 28%. Staða og horfur 3G væðing Símans er á fullu skriði og nær 3G þjónusta Símans nú til ríflega 80% landsmanna. Síminn vinnur einnig að uppsetningu á langdrægum 3G sendum sem munu þegar fram líða stundir ná til stærra landsvæðis en hefðbundið 2G þjónustusvæði nær til í dag. Stærra þjónustusvæði er þó ekki mesti ávinningur viðskiptavina heldur þeir möguleikar sem þeim mun standa til boða í nýju háhraða farsímaneti. Það hefur alltaf verið skýr stefna hjá Símanum að kerfisuppbygging standi undir framtíðarþörf markaðar til fjarskiptaþjónustu og 3G er næsta skref í slíkri uppbyggingu sem arftaki þeirrar farsímaþjónustu sem við best þekkjum í dag. Þá tók Síminn þátt í útboði Fjarskiptasjóðs um uppbyggingu háhraðanets um allt land og hefur samningur milli aðila nú verið undirritaður. Með samningum er öllum landsmönnum tryggt háhraðanet fyrir árslok 2010. Um er að ræða tæplega 1800 heimili og verða þau fyrstu tengd innan mánaðar. Samningsfjárhæðin er 606 milljónir króna. Að undangengnu útboði sömdu Farice hf. og Míla ehf. um fjarskiptaþjónustu til tíu ára. Samningurinn felur í sér að Míla veitir fjarskiptaþjónustu til Farice, vegna uppbyggingar Farice á nýja sæstrengnum Danice og stækkana sambanda á FARICE-1 sæstrengnum. Þessi samningur mun gera það að verkum að Míla mun margfalda þá flutningsgetu sem fyrirtækið hafði fyrir og gefa íslenskum fjarskiptafélögum tækifæri á að stækka sín sambönd og þá um leið efla þjónustuna við sína viðskiptavini. Ljósið heim er ný þjónusta sem Míla setti á markað á síðasta ári. Hún felur í sér aðgang viðskiptavina Mílu að ljósheimtaug, þar sem notandi er með ljósleiðara tengdan í hús hjá sér í stað hefðbundinnar koparlínu. Þjónustan verður eingöngu í boði í nýjum hverfum. Ljósheimtaugin gefur notandanum meiri möguleika á bandbreiðri þjónustu eins og fjölbreyttu sjónvarpsefni og öryggisþjónustu. Skipti tóku yfir hluti í tveimur fjarskiptafélögum í Tékklandi af Exista hf. á fyrri hluta ársins. Hluturinn sem um ræðir jafngilti 8,25% hlut í eignarhaldsfélagi sem á annars vegar 39% hlut í T-Mobile Czech Republic (TMCZ) og hins vegar 100% í Ceske Radiokommunikace (CRa). Á síðari hluta ársins voru þessir hlutir seldir. Skipti var með til skoðunar að endurfjárfesta í félögunum en ekki varð af því. Í upphafi ársins hætti Skjárinn framleiðslu á eigin sjónvarpsefni og með samstarfi við íslensk kvikmyndagerðafyrirtæki var tryggður betri rekstur og góð framleiðsla. Veiking íslensku krónunnar, óheilbrigð samkeppni af hálfu hins opinbera og harkalegur samdráttur á auglýsingamarkaði í kjölfar bankahrunsins hafði mikil áhrif á rekstur Skjásins á árinu. Óvissa myndaðist um framtíð sjónvarpsstöðvarinnar SkjásEins þrátt fyrir gott áhorf, en vikulega horfðu um 80% Íslendinga á aldrinum 12-80 ára, á SkjáEinn á árinu. Notkun á SkjáBíói gekk betur og áskriftartekjur af SkjáHeimi voru yfir því sem áætlun gerði ráð fyrir á árinu, og vann það að hluta til á móti tekjusamdrætti á auglýsingamarkaðinum. Samkeppnisstaða einkarekinna fjölmiðla er afar erfið vegna þeirrar stöðu sem RÚV hefur á markaðinum, í krafti ríflegrar meðgjafar frá skattborgurum. Á seinasta ári var því unnið að því að leiðrétta þetta umhverfi með því að takmarka umsvif RÚV á auglýsingamarkaði. Því miður tókst ekki að ljúka því fyrir áramót og enn ríkir mikil óvissa um framtíð Skjásins. Rekstur Já gekk samkvæmt áætlun á árinu. Já gaf út Símaskrána 2008 í lok maí með nýstárlegu sniði, en hún var unnin í samstarfi við rithöfundinn Hugleik Dagsson sem birti nýja sögu sína “Garðarshólma” inni í Símaskránni, skráin fékk sínar bestu viðtökur frá upphafi og um eitt hundrað þúsund eintök af henni fóru út á fyrstu þremur dögunum. Ánægja viðskiptavina með þjónustu 118 mældist sú mesta frá upphafi mælinga á árinu og vinsældir vefmiðilsins Já.is héldu áfram að aukast, einstökum vikulegum notendum fjölgaði um 23% frá fyrra ári og innlitum um 39%. On-Waves, dótturfélag Símans, sérhæfir sig í að bjóða farsímalausnir um borð í skemmtiferðaskipum og ferjum, ásamt fraktskipum. Mjög góður vöxtur er í starfseminni og félagið undirritaði á árinu fjölmarga samninga um fjarskiptaþjónustu um borð í skemmtiferðaskipum. Fyrirtæki Símans í Danmörku; Business Phone og Ventelo voru sameinuð í byrjun mars undir nýju nafni - Síminn Danmark A/S. Markmið sameiningarinnar var að nýta betur styrk beggja fyrirtækja og ná fram samlegðaráhrifum félaga í líkum rekstri. Í dag starfa 75 manns hjá fyrirtækinu sem býður alhliða fjarskiptaþjónustu til lítilla og meðalstórra fyrirtækja í Danmörku. Yfir 6.500 fyrirtæki eru í viðskiptum við Símann Danmark. Rekstur upplýsingatæknifélagsins Sirius IT gekk mjög vel á árinu. Verkefnastaða félagsins er mjög góð og á síðasta ári gerði fyrirtækið marga stóra viðskiptasamninga bæði við núverandi og nýja viðskiptavini. Meðal viðskiptavina Sirius IT eru margir opinberir aðilar, ríkisstofnanir, sveitarfélög og lífeyrissjóðir. Einnig eru stór einkafyrirtæki aðallega í ýmsum þjónustugreinum, s.s. orkufyrirtæki, fyrirtæki í öryggisþjónustu, tryggingarstarfsemi og fjölmiðlun. Kjarninn í rekstri Sirius IT byggir aðallega á viðhaldi og rekstri stórra upplýsingarkerfa sem oftar en ekki er grunnur í rekstri viðkomandi aðila. Almennt má segja að horfur í rekstri Sirius IT séu góðar. Í byrjun mars tilkynnti einkavæðingarnefnd slóvensku ríkisstjórnarinnar að slóvenska fjarskiptafélagið Telekom Slovenije yrði ekki selt að svo stöddu. Skipti var annar tveggja bjóðenda í félagið. Hinn 19. mars sl. tilkynnti Exista um valfrjálst tilboð í allt hlutafé Skipta hf. Tilboðið hljóðaði upp á 6,64 krónur á hlut og var greitt með nýjum hlutum í Exista. Tilboðstímabil stóð frá 27. mars til 26. maí og hafði Exista eignast 99,22% hlutafjár við lok tilboðstímabils. Í kjölfar þess og afskráningar Skipta voru útistandandi hlutir innkallaðir og er nú Skipti 100% í eigu Exista. Nokkur óvissa ríkir um stöðu efnahagsmála á næstunni. Eftirspurn hefur minnkað og búast má við að sú þróun haldi áfram. Skipti hf. og dótturfélög hafa brugðist við þeim aðstæðum með ýmsum aðgerðum sem allar miða að því ná fram enn betri rekstri félaganna. Á árinu 2008 var gripið til viðamikilla aðgerða í rekstri félagsins. Þessar aðgerðir, sem allar miða að því að búa félagið undir þá óvissu tíma sem framundan eru, hafa þegar skilað sér með lækkun kostnaðar og enn skýrari stefnu fram á veginn. Nánari upplýsingar um samstæðuuppgjörið veita: Brynjólfur Bjarnason, forstjóri, sími 550-6003. Pétur Þ. Óskarsson, framkvæmdastjóri Samskiptasviðs, sími 863-6075. Um Skipti hf. Skipti hf. er eignarhaldsfélag um rekstur fyrirtækja á sviði fjarskipta, upplýsingatækni og afþreyingar. Innan samstæðunnar eru meðal annars Síminn, Míla, Já, Skjárinn, Sensa, Tæknivörur, On-Waves,Radiomiðun og Staki. Erlend dótturfélög eru fjarskiptafélögin Aerofone í Bretlandi og Síminn Danmark í Danmörku, og upplýsingatæknifyrirtækið Sirius IT sem er með starfsemi í Noregi, í Svíþjóð og Danmörku.
Recommended Reading
-
Vísað er til tilkynningar Símans hf. þann 3. nóvember 2023 þar sem fjallað var um ákvörðun fjármálaeftirlitsnefndar Seðlabanka Íslands, dags. 31. október 2023, um að sekta Símann hf. um 76,5 m.kr. í...
Read More -
Meðfylgjandi eru niðurstöður hluthafafundar Símans hf. sem haldinn var fyrr í dag. Attachment Síminn hf. - Fundargerð hluthafafundar 28. janúar 2026 ...
Read More