- Ársreikningur 2008 verður ekki birtur


Uppgjör 365 hf. (Íslenskrar afþreyingar hf.) fyrir árið 2008 verður ekki birt
vegna heimildar til undanþágu birtingar skv. lögum um verðbréfaviðskipti nr.
108/2007. 

Á grundvelli 2. mgr. 56. gr. laganna er félögum, sem eingöngu hafa skráð
skuldabréf, heimilt að birta ekki uppgjör í Kauphöll ef fjárhæð nafnverðs
eininga skuldabréfanna er að lágmarki jafngilt 4,6 millj. króna (fjárhæðin er
grunnfjárhæð sem er bundin gengi evru þann 3. janúar 2007). 

Ársreikningur verður lagður fyrir aðalfund félagsins. 

Nánari upplýsingar veitir Hildur Sverrisdóttir í síma 512-5519