CB Holding tekur yfir knattspyrnufélagið West Ham United


8. júní 2009

CB  Holding   ehf.   (CB   Holding)  sem   er   í   meirihluta   eigu
Straums-Burðaráss fjárfestingabanka hf. (Straumur), hefur tekið  yfir
eignarhaldsfélagið WH Holding  Ltd. og  dótturfyrirtæki þess,  þ.m.t.
West Ham United FC plc ("West Ham" eða "félagið").

Í ljósi þess  góða árangurs sem  forstjóri og yfirþjálfari  félagsins
hafa  náð  á  nýliðinni  leiktíð  mun  CB  Holding  styðja  núverandi
framkvæmdarstjórn til áframhaldandi starfa. Það er því ekki ætlun  CB
Holding að gera  breytingar á framkvæmdarstjórn  né breyta  núverandi
stefnu félagsins.

Með hliðsjón  af breyttu  eignarhaldi hafa  formaður og  varaformaður
stjórnar   látið   af    störfum   og    hefur   Andrew    Bernhardt,
framkvæmdarstjóri hjá Straumi,  verið skipaður stjórnarformaður  West
Ham.

Frekari upplýsingar veitir;
Georg Andersen
Forstöðumaður Samskiptasviðs
Sími: +354 585 6707.
georg@straumur.com.