Útboð ríkisvíxla RIKV 10 0115


Föstudaginn 11. september kl: 11:00 fer fram útboð á ríkisvíxlum með
tilboðsfyrirkomulagi hjá Seðlabanka Íslands. 

Seðlabankinn áskilur sér rétt f.h. ríkissjóðs til að samþykkja öll tilboð sem
berast, hluta eða hafna þeim öllum.  Einungis aðalmiðlurum ríkisskuldabréfa er
heimilt að gera tilboð í útboðinu en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir
fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. 

Greiðslu- og uppgjörsdagur er þriðjudaginn 15. september 2009.

Í þessu útboði óskar Seðlabankinn fyrir hönd ríkissjóðs eftir kauptilboðum í
eftirfarandi flokk ríkisvíxla: 

Flokkur: RIKV 10 0115
Gjalddagi: 15.01.2010
Lánstími: 4 mánuðir

Ofangreindur flokkur verður skráður í NASDAQ OMX Norrænu kauphöllinni á Íslandi
miðvikudaginn 16. september 2009.

Attachments

utbodsskilmalar_090908_rikv_10_0115.pdf frett_utbod_090908_rikv_10_0115.pdf